Posted on nóvember 7, 2009 by drengur
Íslendingar vel aflögufærir
Biskup Íslands segir mikilvægt að halda
áfram þróunaraðstoð, ef það verði ekki
gert geti það haft alvarleg áhrif. Á
Kirkjuþingi sem hófst í morgun sagði
hann íslenska þjóð vel aflögufæra.
Mikilvægt væri að stuðla að nýjum
lífsstíl á Íslandi en ríkidæmi
þjóðarinnar hafi byggt á lánum og
skuldsetningu.
Menn eru misvel aflögufærir. T.d. eru sumir að eyða peningunum sínum í vitleysu. Nú eins og t.d. biskup sem lætur ekki eftir ríkisapparatinu sem hann stjórnar að múta perrapresti með stórum fúlgum. Ég hef ekki vit á þróunaraðstoð, ef hún er þá það, en þykist vita að perrarnir geti séð um sig sjálfir.
Íslendingar vel aflögufærir
Biskup Íslands segir mikilvægt að halda
áfram þróunaraðstoð, ef það verði ekki
gert geti það haft alvarleg áhrif. Á
Kirkjuþingi sem hófst í morgun sagði
hann íslenska þjóð vel aflögufæra.
Mikilvægt væri að stuðla að nýjum
lífsstíl á Íslandi en ríkidæmi
þjóðarinnar hafi byggt á lánum og
skuldsetningu.
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on nóvember 2, 2009 by drengur
Ein lúka af sölum
Ein matskeið púrrulaukur
Hnífsoddur af möluðum engifer
Hnífsoddur af túrmerik
Ein teskeið gróft salt
Einn lítri vatns
+ Mikið og ríkt sjávarbragð
+ Minnir á te
- Mikið og ríkt sjávarbragð
- Minnir á te
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on nóvember 1, 2009 by drengur
Of feitur, skyndilausn! Súpudagar!!!
Fyrsta súpan var svona:
Hálfur lítri vatns
10 lárviðarlauf
3/4 kjúklingateningur
1 tsk chilliduft
3 kartöflur
+ Sætur sítrónu og lárviðarkeimur
+ Chilliduftið kveikti í bragðlaukunum
- Rammt bragð
- Bragðlausar kartöflur
Flokkað undir: Uncategorized | 1 ummæli »
Posted on október 16, 2009 by drengur
Ég tek heilshugar undir þetta:
Sent á frettir@ruv.is:
Góðan dag,
Ég vill byrja á að þakka góð störf. Fréttastofa RÚV er að mínu mati langbesti fréttamiðill Íslands og þótt víðar væri leitað.
En ég vill koma á framfæri óánægju minni með frétt sem birtist í fréttum sjónvarpsins og á vef RÚV í dag 15. október; “Flúðu vegna ónota frá sendi”.
Mér þykir það miður að í þessari frétt hafi ekki verið haft samband við fróða menn á þessu sviði. Því ég tel víst að engar vísindalegar sannanir liggji fyrir því að GSM-sendar hafi skaðleg áhrif á heilsu fólks. Nánast allar borgir heimsins eru nú þaktar af GSM-sendum. Meira en helmingur mannkyns er innan við 500 metra frá sendi á hverri stundu. Í Reykjavík eru hundruðir senda. Allir þessir sendar voru settir upp á seinustu 15 árum. Punkturinn minn er einfaldlega að ef GSM sendar hefðu slæm áhrif á fólk þá værum við líklega búin að taka eftir því núna.
Samfélag okkar byggir á tækni og vísindum en þrátt fyrir það eru fáir sem hafa góðan skilning á tækni og vísindum. Fréttastofan og aðrir fjölmiðlar bera því aukna ábyrgð í að fræða almenning um eðli þeirra hluta sem um er fjallað. Og að gera ekki of hátt undir höfði efnum sem standast ekki vísindalega grandskoðun (þegar þetta er skrifað er umtöluð frétt efst og stæðst á heimasíðu RÚV).
Að mínu áliti eru einkennin sem konan í fréttinni lýsti nógu almenn til að geta átt sér ýmsar aðrar skýringar. Td. ofnæmi eða eitthver ertandi efni í umhverfinu. Í fréttinni er ekki minnst á neitt slíkt.
Kveðja,
Ingvi Gautsson
Ps. Þetta bréf er lýsir minni persónulegu skoðun. En þess skal getið að höfundur vinnur fyrir Vodafone og hefur því óbeinna hagsmuna að gæta í þessum efnum.
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on október 7, 2009 by drengur
Davíð er kominn í Hádegismóa. Það tók þennan mann, sem litla reynslu hefur af fjölmiðlun, og enn minni af sannleikanum, ekki langan tíma að finna veikan blett á ríkisstjórninni. Eða öllu heldur, skulum við segja, á kjósendum. Hin pólitísku plott sem sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf kunnað best eru einföld og ættu í raun ekki að ganga í sæmilega upplýstu samfélagi.
Núna hefur Sjálfstæðisflokkurinn ákveðið að vera sammála einhverjum minnihluta í ríkisstjórninni um einhver viðkvæm mál og magna upp ósamstöðuna. Eitthvað sem myndi ekki ganga vissu menn hvað væri á seyði.
Almenningur hefur unun af því að láta Sjálfstæðisflokkinn stjórna allri umræðu á Íslandi. Ef allir væru að leika sama pólitíska leikinn kæmi þetta ekki að sök. Hinsvegar virkar þetta fjandi vel á hugsjónarfólk. Sem betur fer er nokkuð stór hluti þingmanna VG hugsjónafólk. Sem betur fer fyrir kjósendur sína og sem betur fer fyrir andstæðingana.
Það má vera að Ögmundur sjái ekki í gegnum hrókeringar Davíðs, bloggaranna og allra hinna, en þó hann gerði það þá verður hann samt að fylgja sinni sannfæringu. Þetta er auðvitað eitthvað sem Kratar eiga erfitt með að skilja og því stirðnar samstarfið enn meira en þyrfti.
Helsti óvinur hugsjónamannsins er ekki sá sem hefur gagnstæðar hugsjónir heldur hinn sem hefur engar. Því slíkum andstæðingi leyfist allt til að ná endamarkinu. Í þessu tilfelli eru það völd.
Ég legg til að þessi umræða, sem snýst um sjálfa sig, verði lögð niður og menn einbeiti sér að þeim verkefnum sem fyrir liggja. Vangaveltur um líftíma ríkisstjórna eru ævinlega það sem útlendingar kalla “Self fulfilling prophecy”.
Stundum borgar sig að skoða hverjir hafa hag af umræðunni ef ekki til annars en að sjá á hverju hún bitnar.
Flokkað undir: Uncategorized | 15 ummæli »
Posted on september 28, 2009 by drengur
Umdeildir menn.
Eru Norðmenn vinir í raun?
Þann 13. maí 1945, örfáum dögum eftir að heimsstyrjöldinni síðari lauk í Evrópu, tilkynnti ríkisstjórn Íslands að hún hygðist standa fyrir söfnun meðal landsmanna til þess að koma stríðshrjáðum „bræðraþjóðum“ okkar Danmörku og Noregi til hjálpar. Söfnun þessi var nefnd Landssöfnun og stóð yfir í tvær vikur frá 14. maí til þess 26. Áður en til þessarar söfnunar var boðað höfðu þó þegar safnast á þriðju milljón króna, auk fatnaðar, til Norðmanna, Dana og Finna. Flokksritin gömlu voru nokkuð sammála, aldrei þessu vant, um að tilgangur söfnunarinnar væri að sýna í verki að Íslendingar teldu sig til bræðraþjóðar Norðmanna og Dana.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa því strax fyrsta daginn höfðu safnast 385 þúsund krónur og voru þá eingöngu talin framlög 12 aðila; Bæjarsjóðs Reykjavíkur og 11 fyrirtækja. Almenningur átti síðar eftir að taka við sér og til marks um fórnfýsi alþýðunnar er haft eftir gamalli konu í dálkinum „Hannes á horninu“ í Alþýðublaðinu 7. júní 1945 að hún hafi gefið 30 krónur í söfnunina og ætli í staðinn ekki að kaupa neitt kjöt allan júnímánuð og nokkuð fram í júlí. Á meðan á söfnuninni stóð var ekkert lát á fréttum þess efnis að hún gengi með eindæmum vel um land allt og að þátttaka væri nokkuð almenn.
Þegar upp var staðið höfðu, samkvæmt Öldinni okkar, safnast í Landssöfnuninni tæpar 5 milljónir króna og alls gaf íslenska þjóðin allt að 7 milljónum króna til bræðraþjóða okkar á Norðurlöndum á stríðsárunum. Að núvirði væru 7 milljónir króna ríflega 453 milljónir króna. En þess bera að geta að á Íslandi bjuggu þá, skv. Hagstofunni, einungis rúmlega 127 þúsund manns.
Ekki er hægt að bera saman neyð Norðmanna og Dana á stríðsárunum og í stríðslok, annars vegar, og Íslendinga nú í bankahruninu, hins vegar, en þó verður ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að vinaþelið var öllu meira 1945 en 2009 á milli þessara frændþjóða, eins og þær eru kallaðar nú. Þó deila megi um að hve miklu leyti orsakir hrunsins eru utanaðkomandi, er ljóst að afleiðingarnar fara ekki í manngreinarálit. Þó að vantrausts gæti til íslenskra yfirvalda er þá ástæða til að bræðralag þjóða gjaldi fyrir það?
Að þessu sögðu leggja höfundar til, við norsku þjóðina að hún láni þeirri íslensku það sem til þarf svo rétta megi af íslenskt efnahagslíf. Á milli vinaþjóða er óþarfi að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, með alla sína sögu, sé notaður til einhverskonar þvingana og setji nauðbeygðri þjóð afarkosti. Slíkan millilið hafa þjóðirnar aldrei þurft og þurfa ekki í dag.
Höfundar starfa við ferðaþjónustu,
Björn Pálsson
Drengur Óla Þorsteinsson
En þetta er kannski ekki fjarri lagi?
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on september 24, 2009 by drengur
Það er margt líkt með stóra ráninu í Svíþjóð og ránanna sem voru framin á Íslandi undanfarin ár. T.d. að skipulagið var gott hjá ræningjunum en eftirlitsaðilar voru ekki með á nótunum. Innanbúðarmenn komu sennilega við sögu í báðum tilfellum…
…og ræningjarnir notuðu þyrlu.
Flokkað undir: Uncategorized | 1 ummæli »
Posted on september 12, 2009 by drengur
Hér þarf ekkert að fjölyrða um aumingjaskapinn hefur tíðkast hjá Alþýðusambandi Íslands síðustu ár. Í stað þess að vernda félagsmenn sína fyrir atvinnurekendum og fjármagnseigendum tók þetta batterí sér stöðu meðal annara stuðningsmanna markaðarins og gerði ekki rassgat. Lágmarkslaun á Íslandi eru þess vegna í raun lægri en atvinnuleysisbætur ef dæmið er reiknað til enda.
Í hverskonar landi tekur forseti Alþýðusambandsins þátt í svona andskotans vitleysu?
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »
Posted on september 8, 2009 by drengur
Alveg er manni óskiljanlegt hvaða hugsunarháttur hefur ráðið ríkjum á Îslandi á eftirstríðsárunum og fram undir daginn í dag varðandi börn og uppeldi þeirra. Fáar stofnanir virðast hafa verið reknar með velferð barnanna í huga og flestar mannaðar af, í besta falli, vanhæfu fólki og í versta falli aumingjum með kvalarlosta.
Ég man þegar ég var barn og “ókunnugir” voru hættulegastir. Auðvitað er þessu öfugt farið.
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »
Posted on ágúst 17, 2009 by drengur
Niðurskurður hjá lögreglunni hefur óvæntar afleiðingar!

Flokkað undir: Uncategorized | 5 ummæli »