Posted on mars 26, 2007 by drengur
Helgin var nokkuð góð enda fékk ég góða gesti. Lotta hin sænska og Reynir hinn þistilfirski komu í heimsókn klukkan 04:00 á Laugardagsmorgni og fóru stuttu seinna. En ýmislegt skemmtilegt tókst okkur þó að gera fyrst.
Við:
Grilluðum svínakótilettur og bjuggum til allskyns gúmmelaði með. Þ.e.a.s. við karlmennirnir, téttlingin skoðaði hestasíður á meðan.
Löbbuðum um sögufrægar slóðir og [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 9 ummæli »
Posted on mars 22, 2007 by drengur
Það hafa margir velt þessu fyrir sér. Hvað er það sem gerir góðan hamborgara. Það er ekkert mál að búa til fullkominn borgara á Íslandi. Hérna er uppskriftin:
1 Hamborgarabrauð (þau íslensku eru flest vond, reyndu að finna óvont)
115 grömm af nautahakki, það má vera fita í því, ekkert helvítis horkjaftæði!
Ein sneið af feitum gulum osti. [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 16 ummæli »
Posted on mars 22, 2007 by drengur
Fór í búðina um daginn og engin súrmjólk var sjáanleg (þetta var 10/11, aldrei neitt til þar) þannig að ég keypti AB mjólk. AB mjólk er viðbjóður. Hún er svo innilega ógeðslega vond að ég svitna við að éta hana. Ég er t.d. að reyna að pína þennan viðbjóð upp í mig núna.
Ojj!
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on mars 21, 2007 by drengur
Það er í rauninni bara eitt sem er erfitt við að vera í ræktinni. Ég á ekkert erfitt með að mæta í sjálfu sér. Að púla er í sjálfu sér erfitt en maður endist svo stutt að maður er ekki byrjaður að hugsa um það einusinni þegar maður er búinn á því.
Erfiðast er að vera [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »
Posted on mars 17, 2007 by drengur
Síminn minn er búinn að endast í sitt ár og self-destructið komið af stað. Diskófriskóljós eru komin í gang og ég veit að hann mun springa anytime now!
Ég fór ekki sömu leið og sumir sem ég þekki sem eiga ekki fyrir Visa reikningunum sínum heldur keypti mér svona.
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »
Posted on mars 15, 2007 by drengur
Skildi það vera tilviljun eða erum við hreinlega að tala um sviðsetningu? Sviðsetningu á útliti og aðstæðum eða hreinlega sviðsetningu á tilvist náungans? Við verðum að átta okkur á því að Bandaríkin eru í stríði. Ef þeir þurfa að ljúga til að hámarka árangur stríðsreksturs þá gera þeir það. Þetta er ekki ætlað sem samsæriskenning [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on mars 14, 2007 by drengur
Ég var búinn að vera veikur og allt í góðu með það. Nema hvað. Á mánudaginn verð ég svona agalega þreyttur um fjögur leitið og ákveð að leggja mig. Vakna klukkan sex til að fara í ræktina en er þá hálf ringlaður. Minnstu munar að ég falli í yfirlið nokkrum sinnum í ræktinni, sem er [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 1 ummæli »
Posted on mars 12, 2007 by drengur
Allir sem ég þekki sem eiga Macintosh tölvur. Þetta er handa ykkur. En ekki Axel, hann er nefnilega hugsanlega að snúast aftur í átt að Windows ógeðinu!
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »
Posted on mars 10, 2007 by drengur
Helstu einkenni piparsveins 21. aldarinnar eru í töluverðri andstöðu við einkenni forföður hans á 20. öldinni. Piparsveinninn í dag er hreinlátur, sportlegur og kurteis við kellingar. Til þess að læra a.m.k. tvo af þessum hlutum þá er ég kominn með meistara (hann á reyndar fjögur námskeið eftir til að ná þeirri tign) sem er að [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 7 ummæli »
Posted on mars 8, 2007 by drengur
Já ég er hugsanlega eftilvill kannski að leita mér að bíl. Enn og aftur koma vankantar Akureyrar í ljós. Jú, hér er nóg af ágætum bílasölum og ef maður ætlar að kaupa nýjan bíl þá er um auðugan garð að gresja. Hinsvegar er það svo að ef manni dettur í hug að kaupa sér hundraðþúsund [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »