Helgin var nokkuð góð enda fékk ég góða gesti. Lotta hin sænska og Reynir hinn þistilfirski komu í heimsókn klukkan 04:00 á Laugardagsmorgni og fóru stuttu seinna. En ýmislegt skemmtilegt tókst okkur þó að gera fyrst.
Við:
- Grilluðum svínakótilettur og bjuggum til allskyns gúmmelaði með. Þ.e.a.s. við karlmennirnir, téttlingin skoðaði hestasíður á meðan.
- Löbbuðum um sögufrægar slóðir og neyddum útlendinginn til að taka myndir af allskyns óáhugaverðu rugli.
- Fórum á Stjörnuístöltsmegabæt. Hestar hlupu í hringi og áhorfendur helltu í sig brennivíni af miklum móð. Þetta var bara stórgaman
- Fórum í hestamannapartý úti í sveit. Mig minnir að það hafi verið hundleiðinlegt.
- Fórum á flesta skemmtistaði bæjarins og sumir létu reka sig út af einum eftir að hafa þaggað niður í leiðinlegasta amfetamínsjúklingi sem sögur fara af. Sumir eru stoltir af sumum fyrir framtakssemina.
- Smygluðum útlendingnum inn á skemmtistað með góðri hjálp.
- Dönsuðum eins og vitleysingar.
- Átum þynnkumat frá Nings því Pengs var lokað.
Nokkuð góð helgi en heldur stutt.
Flokkað undir: Uncategorized
suss ég get skilið vel þetta með brennivínið og bjórinn… og jú kanski nings en hestar það er ekkert hægt að horfa á hesta án þess að verða svangur folaldalund sussumbí það er tær snilld … en ég ætla ekkert að reyna að toppa kallinn í hambógerð .. ég ætlast bara til þess að kallinn meiki solleiðis handa mér við gott tækifæri..
Þú ert stuttur!
Þú heldur kannski að gírafar og storkar lifi næstu kjarnorkustyrjöld af?
Við erum allavega screwd ef storkarnir drepast allir :S
Ertu búin að taka til?
já, ertu búinn?
Taka til og ekki taka til… það er svona… ágætt hjá mér bara
Ég er einmitt að fara hitta Lottu hina sænsku á eftir. Þær geta nú ekki verið mikið fleiri en ein!
Bið að heils’enni! Reyndu að bjóða henni hrossakjöt