Posted on apríl 30, 2007 by drengur
Mér tókst að ráða mig í vinnu í dag. Ekki nóg með að ég byrji strax á miðvikudag þá er ég svo heppinn að fá vinnu þarna með skóla næsta vetur og Guð má vita hvað. Ekki skemmir fyrir að vinnan er hreint ágætlega borguð. Óskið mér góðs gengis!
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »
Posted on apríl 29, 2007 by drengur
Gærdagurinn var nokkuð góður. Ég skrapp með Villa í leikhús að sjá leikritið Fimm stelpur. Stórskemmtileg áhugamannasýning sem kostar bara 800 kall inná. Að því loknu var gripið smá í bjór og póker að heldri manna sið.
Þegar klukkan var svo rétt að skríða í ellefu vorum við Villi boðaðir í pólitískar umræður við eldhúsborðið hjá [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »
Posted on apríl 28, 2007 by drengur
Mæli eindregið með þessu viðtali hér við Jónínu Bjartmarz.
Kýs einhver þetta?
Flokkað undir: Uncategorized | 5 ummæli »
Posted on apríl 27, 2007 by drengur
Mér finnst fátt skemmtilegra en að fá góða vini í heimsókn. Að þessu sinni var það Jóhann Hafberg sem mætti hress og kátur. Okkur tókst að vera sáralítið fullir og gera nánast ekkert af okkur. Ég var, enda, í prófi í gær og gat lítið notið lífsins síðustu dagana fyrir það.
Við gerðum ýmislegt skemmtilegt þó. [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »
Posted on apríl 25, 2007 by drengur
Nú á að klára að lesa allt námsefni Réttarfars fyrir klukkan 17:30 því þá byrjar fótboltakvöldið mikla. Dagskráin byrjar með hamborgara og frönskum á Allanum en þar verður svo einmitt sýndur leikur Chelsea og Liverpool í undanúrslitum meistaradeildarinnar.
Þegar Liverpool hefur lokið sér af við að niðurlægja apakettina í Chelsea þá mun ég sjálfur niðurlægja meðspilara [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »
Posted on apríl 24, 2007 by drengur
Mér hefur verið bent á, úr ýmsum áttum, að kannski sé ég með álagsastma. Djöfulli væri það gott. Að fá lyf við aumingjaskapnum. Geta svo sagt við Arnór “Manstu þarna Landsbankahlaupið á Raufarhöfn 1990? Já, ég var með álagsastma, annars hefði ég unnið!” Svo fengi ég svona púst eða eitthvað og þegar fólk væri leiðinlegt [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 5 ummæli »
Posted on apríl 24, 2007 by drengur
Það voru ekki margir á Íslandi sem höfðu sama áhugamál og hún. Þetta vissi hún sjálf. En hún var handviss um að hennar sannfæring væri ekkert ómerkilegri en sannfæring þeirra sem höfðu hefðbundnari áhugamál. Er eitthvað í eðli fótbolta sem gerir hann tímans virði?
En þegar hún kynntist internetinu þá breyttist þetta allt. Hún hafði fram [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on apríl 24, 2007 by drengur
Þetta er saga um mann sem fór á skíði og fyrir slysni, eins og þið munuð lesa, komst að því að Guð er ekki til.
Guðmundur ber ekki bara venjulegt nafn, hann er líka meðalmaður að hæð og þyngd og er á engan hátt afgerandi í útliti. Guðmundur starfar hjá fornfrægu framleiðslufyrirtæki á Norðurlandi og hefur [...]
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on apríl 21, 2007 by drengur
Þegar þetta er skrifað er spaugstofan að fara á kostum í framúrstefnulegu, fersku og hárbeittu gríni. Það er með ólíkindum hversu mikið þessi hópur hefur á síðustu tvöhundruð árum breytt því sem við teljum vera fyndið. Horfnir eru dagar stjórnmálaeftirherma.
Nei, þetta er náttúrulega þver öfugt. Það er með ólíkindum að þetta skuli ennþá vera eina [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 8 ummæli »
Posted on apríl 20, 2007 by drengur
Ægilega fínt veður úti og ég er mikið að spá í að loka mig inni og gera við myglaða Windows tölvu. Það er skemmtileg kaldhæðni örlaganna að ég sem hata Windows XP útaf lífinu eyði stórum hluta míns tíma í að lappa upp á biluð Windows XP.
Annars langar mig að benda á að Ubuntu sjö [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »