Fréttir!

(03:17:17 PM) Haddi: dökkur Kaldi er kominn í ríkið

Homo Sapiens – hinn löggilti fasteignasali

Við mægðinin erum þekktir snillingar. Sem slíkir getum við gengið í störf hinna ýmsu stétta og gildir þá einu hvort um lögvarin starfsheiti er að ræða ellegar ekki. Í dag fetuðum við í fótspor fasteignasala og undirbjuggum allskyns pappíra í kringum kaup og sölu fasteigna. Útkoman var í heimsklassa.
Næsta viðfangsefni okkar verður líklega að taka [...]

Bönnum það!

Frjálshyggjan er fljót að víkja þegar menn eru orðnir stórir kallar. Það er s.s. ekki eingöngu Steingrímur sem ætti að vera úthrópaður alræðissinni og vera settur undir hatt þess að ‘vilja banna allt’. Kemur ekki bara Guðlaugur þór og vill banna nauðgunarleikinn.

Óæskilegir tölvuleikir

Reglulega birtast fréttir af einhverjum tölvuleik sem þykir stangast á við fyrirframgefin siðferðissjónarmið. Nýjasta dæmið er að finna í Morgunblaðinu í dag. Þar er umfjöllun um ‘Nauðgunarþjálfun’ á Netinu.
Morgunblaðið vísar þar til hins japanska RapeLay tölvuleiks sem mér skilst að gangi út á að sýndar-nauðga með rafrásum teiknuðum fígúrum á skjánum. Þetta kemur eflaust engum [...]

Úúúúú

Það er að bresta á! Ef þeir bara hundskuðust til að gera Commando II þá væri hægt að hætta að gera bíómyndir, þetta væri bara búið!

Leikurinn

Klukkan átta í morgun byrjaði síminn að hringja. Stressaðir Liverpool menn vakna snemma. Ég er þó einhvern pollrólegur yfir þessu. Ég virðist hafa ofurtrú á mínum mönnum því ég er algjörlega sannfærður um að þeir fara með sigur af hólmi og það frekar létt.
Þeir sem lesa þessa færslu eftir leik mega endilega benda mér á [...]

Á stofunni

“Sko, þannig er mál með vexti… ég hef alltaf verið svona sveimhugi. En núna er eins og þetta sé algjörlega farið úr böndunum. Mér finnst eins og engar hugsanir séu nógu merkilegar til þess ég nenni að fókusera á þær. Ég er bara algjörlega sinnulaus á það sem er í gangi í kollinum á mér [...]

Ég elska skóla!

“Fór ágætlega yfir þitt próf sem önnur og það er víst ég sem met próf hér til einkunna en ekki þú.”

NBA nostalgía

Ég er búinn að vera í einhverri NBA nostalgíu undanfarið. Er búinn að rannsaka gömlu hetjurnar á Wikipedia og skoða myndbrot á Youtube á fullu. Ég man hvað mér fannst þegar ég var krakki. Mér fannst Barkley bestur og Dominique Wilkins átti öll flottustu tilþrifin, Magic bestu sendingarnar, Dikembe Mutombo var bestur í að verja [...]

Grænmetisætur varið ykkur!

Snickers og Mars og allt þetta góða stöff er núna búið til úr kálfamögum. Sjá nánar! Nammi, namm, það er fátt betra en Snickers, nema þá eftilvill nautakjöt!