Posted on júní 30, 2007 by drengur
Ég gat ekki séð mér fært að hlusta á Dúndurfréttir og Sinfóníuhljómsveitina taka The Wall í allri sinni dýrð. Ástæðan var sú að ég er samviskusamur sumarstarfsmaður og tek mér þess vegna ekki frí. Að vinna 23 daga í röð er ekki beinlýnis skemmtilegt en ég get vel ímyndað mér margt verra.
Ég hélt að það [...]
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on júní 28, 2007 by drengur
Die Hard 4
Þreytt lögga nennir engu veseni og slekkur á böggurunum. John McClane er ekki í vandræðum með að granda stórtækum stríðstækjum með berum hnefunum og sparar ekki eightieslegar einnar-línu móðganir. Eina sem hægt er að setja út á þetta er að hann er ekki í hvítum hlýrabol. Stórgóður hasar fyrir þá sem vita á [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 1 ummæli »
Posted on júní 26, 2007 by drengur
Helgin fór í að sækja fermingarveislu á Ísafirði. Að fara á Ísafjörð er langt, hvaðan svosem lagt er af stað. Að keyra frá Akureyri virðist taka u.þ.b. 6 klukkutíma. Allir þeir aumingjar sem kvarta yfir vegamálum í sinni sveit ættu að prófa að ferðast um Vestfirðina (eða yfir Melrakkasléttuna) og kynnast alvöru ónýtum vegum.
En Vestfirðirnir [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 1 ummæli »
Posted on júní 20, 2007 by drengur
Af öllu því ógeðslega sem hægt er að leggja sér til munns eru tilbúnar íslenskar samlokur það versta. Hlutir sem eru ógeðslegri en það eru ógjarnan taldir til matvæla.
Einstök árátta samlokugerðarmanna er að notast við sömu, eða svipaðar, uppskriftirnar. Ekki endilega slæmt gefið að uppskriftirnar séu góðar og úthugsaðar. Ég gef mér að lesendur hugsi [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »
Posted on júní 18, 2007 by drengur
Upplifði í gærkvöldi að sitja útskriftarveislu Menntaskólans á Akureyri. Fyrirkomulagið er þannig að eftir að allir sem nokkurntíman hafa gengið í þennan framhaldsskóla eru búnir að sólunda helginni sinni í nostalgíu og fölskum minningum um blóm í haga þá taka útskriftarnemar þátt í veislu sér til höfuðs og spana með sér ættingja.
Eins og gefur að [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 8 ummæli »
Posted on júní 16, 2007 by drengur
Ég umgengst menn í mínu daglega amstri sem hafa sitt lifibrauð af því að keyra stóra bíla eftir þjóðvegum landsins. Í dekkjaför þeirrar umræðu sem hefur verið áberandi í þjóðfélaginu undanfarið, þ.e. um hraðakstur og glannaskap vélhjólamanna hef ég yfirheyrt vinnufélagana um ástandið.
Einn bílstjórinn sagði að eitt það versta sem hann vissi væru vélhjólamenn í [...]
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on júní 14, 2007 by drengur
22.10
Skemmtiþáttur Dr.Gunna Ceres 4 og Svavar Knútur eigast við í Sólópunkti
Er þetta ekki eitthvað sem allir ættu að hlusta á? Rás 2!
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on júní 11, 2007 by drengur
Það er algerlega borin von að verða einhvers vísari við lestur íslenskra prent- og vefmiðla í dag. Þessi illa unna frétt birtist augum mínum áðan á mbl.is.
Nú er ég nógu góður í Trivial til að vita að höfuðborg Brasilíu er Brasilía en ekki Sao Paulo eða Rio þó það hljómi betur.
Ég vantreysti mbl.is.
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on júní 10, 2007 by drengur
Ég og pabbi afrekuðum að ganga upp á Kerlingu í Eyjafirði í gær. Tilgangurinn var að mynda 5-tinda menn á sinni uppleið. Það er hreint með ólíkindum hvað við erum hraustir. Pabbi kominn á fimmtugsaldurinn og ég með mína 5-10 klukkutíma fyrir framan tölvu á dag. Við vorum ekki í miklum vandræðum með þetta og [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on júní 7, 2007 by drengur
“Hver sagði þér það?”
“Hefurðu einhverjar heimildir fyrir því?”
og gullkornið:
“Ég hef nú aldrei heyrt það áður!”
Sumt fólk notar þetta oft og tíðum þegar það trúir ekki einhverju. Í stað þess að segja “Það er ótrúlegt, ég bara trúi þessu ekki!” Þá spyr það mann hver sagði manni það.
“Doddi, vatn frýs við 0°c!”
- “Hver sagði þér það?”
“Uhh… [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »