Fyrsti dagur frís

Hvar er þessi rigning sem átti allstaðar að vera? En a.m.k. erum við á Bifröst núna í góðu yfirlæti. Fengum rauðvín við komuna og ekki er loku fyrir það skotið að við fáum ristað brauð núna í hádeginu.
En planið klúðraðist eitthvað, við vorum að skríða á fætur og ég hugsa að Snæfellsnesið loki brátt.
En meira [...]

Snaffalaffölös

En þetta kallaði einn gallvaskur túristi Snæfellsnesið óframberanlega. Þangað er stefnan tekin í þessu miðvikufríi okkar hjónaleysanna. Allt virðist stefna í skemmtilegasta ródtripp sögunnar með allskonar gríni, glensi og uppákomum.
Ástæða þess að hið geysifallega Snæfellsnes varð fyrir valinu er sú að þar verður skv. Veðurstofu Íslands minnsta rigning á landinu. Ekki að við óttumst rigningu [...]

Hrakningar á ólöglegum hraða

Einn ágætur bílstjóri lenti í því um daginn að í rútubifreið hans sátu tvær ítalskar ‘kellingar’ eins og hann kallaði þær. Þegar minn er rétt ný lagður af stað úr Reykjavík stendur önnur ítalska upp gengur beint að bílstjóranum og bendir á hraðamælinn og bablar um leið eitthvað sem minn maður skildi ekki alveg.
Þolinmæði þrautir [...]

Lélegur í veðri, eða óheppinn

Mér tókst að kríja út frí á sama tíma og Hildur og var ætlunin að gera úr því heljarinnar útilegu eða svipuð skemmtilegheit. Þar sem við verðum bæði að vinna um verslunarmannahelgina fannst okkur ágætt að fá frí þriðju- og miðvikudag til að upplifa góðvirðissumrið mikla.

Bíla búgí vúgí!

Berast nú fréttir af því að hægt sé að panta Bugatti Veyron í gegnum íslenska bílasölu. Ekki á ég von á að hann seljast hingað en það væri nú gaman ef einhver ríkur kunningi manns (t.d. Gosi) keypti slíkan dýrgrip og leyfði manni að prufukeyra.
Ég prufukeyrði í gær suður-kóreskan bíl sem pabbi keypti í einhverri [...]

Náttúrufræðiferð

Ég og Hildur fórum í náttúruskoðunarferð í gærkvöldi eftir vinnu. Við keyrðum í átt til Ólafsfjarðar og ákváðum að stoppa hvar svo sem okkur litist á. Okkar fyrsta stopp var í Hauganesi.
Hauganes, fyrir þá sem ekki vita, er lítill þéttbýliskjarni sem minnir á hluta úr millahverfi í Garðabænum, þangað til komið er niður á bryggju [...]

Ættfræði

Er búinn að vera að leika mér svolítið með Íslendingabók í staðinn fyrir að vinna. Hef komist að því að ég er skyldur öllum bílstjórum og öðrum ónytjungum í gegnum Dýrafjörðinn en ráðamönnum þjóðarinnar í gegnum Langanes.
Ólafur Ragnar Grímsson, sem er nú að vestan, hann er meiraðsegja skyldur mér í gegnum Læk-/nis/nes-staði á Langanesi, þó [...]

Kátir Dagar

Þá er lokið skemmtilegustu helgi sumarsins. Hún var því miður of fljót að líða og syrgi ég það.
Skemmtilegheitin hófust með ródtrippi hinu mesta. Maríurnar þrjár og ég fórum á kostum. Eitthvað settu þó Anna María og María Önnu Maríudóttir út á nestið sem Eva María og ég keyptum. Hollustan var sett í öndvegi og í [...]

Allt fyrir listina

Þórshöfn City

Nú styttist óðum í að ég skelli mér til Þórshafnar á Káta Daga. Ég hlakka mikið til og er nokkuð viss um að þetta verður mjög gaman. Hildur og Jónína fara í kvöld en á morgun fer ég og tek Maríurnar Evu og Önnu ásamt afkvæmum með mér.
Ég vænti þess að sem flestir muni heimsækja [...]