Barist við vindmillur ósk- og gróðahyggju

Þessi maður er óþreytandi í að benda á nekt keisarans og á lof skilið. Mæli eindregið með að menn skoði þessa umræðu.

Stebbi skorar á feitan frænda sinn

Stebbi er í öngum sínum yfir líkamlegu ástandi frænda síns. Í Febrúar á frændinn að geta eftirfarandi:
Hlaupa 2,8km á undir 12 mínútum
2 mínútna pása frá 12 mínútunum
80 armbeygjur á 2 mínútum
2. mínútna pása
80 magaæfingar á 2 mínútum
Þetta verður pís of keik

Hugurinn gildir

Þegar gefnar eru gjafir er oft sagt að hugurinn gildi en ekki gjöfin sjálf. Hvað á ég þá að halda um þann sem gaf mér gleraugnaklút í gær merktan í bak og fyrir “X-B”?
Klúturinn er helvíti góður. Kámið óttast hann og ég sé eins og gammur eftir að hafa rent honum yfir glerið.
Það var þó [...]

Skólinn er byrjaður!

Ég sit hérna tíma í Þjóðarétti með fjöldanum öllum af allskyns fólki. Sumt fólkið hef ég séð áður, ekkert spennandi við það, en aðrir eru spánýir… eða sko eru þriðja árs nemar.
Ég er með fartölvu í fyrsta skipti síðan í MK og það er ótrúlegt hverju ég afkasta í glósunum. Stundum langar mig að stoppa [...]

Unaður

Hamingja og gleði, blóm í bala!

Wii championship #2

Þetta er mynd frá Wii-tsjampíónship sem haldið var hjá Villa í gærkvöldi. Keppt var í Turbo-Jump og Keilu ásamt fleiri greinum. Í hálfleikum var svo slátrið étið og ákavítið drukkið í þjóðlegum íþróttaanda. Sjá nánar.

Ég og F-22

Glámur

Þá er ég kominn úr sjónmælingaprófinu góða. Ég var nokkuð vel undirbúinn en allt kom fyrir ekki og ég kolféll. Ég labbaði út með gleraugu og sé heiminn í nýju ljósi. Þetta er allt annað líf, það get ég sagt ykkur.

Sjúkdómar sjáenda

Skringilegt fyrirbæri fyrir lífverur að hafa þróað með sér þetta þriðja auga. En þriðja augað nemur, eins og þið vitið, fyrirbæri að handan. Handan við hvað? Við erum ekki með fjórða augað til að sjá ‘vegginn’ eða hvað það svosem er sem er á milli, þannig að þín getgáta er eins góð og mín.
En þriðja [...]

Verslunarleiðangur

Ég rölti af stað áðan í Liverpool bolnum mínum í þeim erindagjörðum að koma mér upp þeim námsbókum sem ekki fást á Amazon. Hinn nýi stórglæsilegi Penni hér í Hafnarstrætinu varð fyrir valinu. Með breytingum á húsnæði hafa einnig orðið breytingar í áherslum því þetta var í fyrsta skiptið þar sem ég hef fundið allar [...]