Hverjir fá að reynsluaka?

A.m.k. ekki menn með hanakamb!

Breyting: Sjá viðtal

Portus.is plögg! 

Fór á Bílasölu Akureyrar í gær til að prufkeyra BMW bifreið sem þar stóð úti á plani. Í fyrstu tilraun til að leggja bílnum mínum og fara inn kom þar að bílasali á Santa Fé sem flautaði á mig og gaf til kynna að ég væri fyrir. Ég keyrði þá bara í burtu og rúntaði aðrar bílasölur en kom þá til baka og sá að fyrir utan var náðarsamlegast autt stæði fyrir svokallaða kúnna.

Þegar inn er komið spyr ég fyrsta manninn sem á vegi mínum verði hvort ég geti fengið að reynsluaka þessari dýrindis BMW bifreið. Fæ ég þá nokkuð margar nokkuð óvenjulegar spurningar og verð fljótt var við mikið hik, flótta og undankomur. Samtalið endar með því að bílasalinn heldur þéttingsfast utan um lyklana og neitar að láta þá af hendi.

Eigandinn vildi ekki að það væri verið að djöflast á bílnum.

Ég gaf aldrei til kynna að slíkt stæði til. Ég ætlaði eingöngu að reynsluaka bifreiðinni með það fyrir augum að kaupa hana, eins og ég sagði bílasalanum. Eitthvað fannst honum sagan mín ótrúleg og hreinlega neitaði að leyfa mér að prófa bílinn.

Hvað haldiði að kagginn hafi kostað? Tæplega tveggja mánaða laun.

Mér fannst þetta bæði fyndið og vandræðalegt fyrir aumingja sölumanninn og er ég búinn að segja þessa sögu ótt og títt síðan. N4 fengu veður af þessu og tóku við mig sjónvarpsviðtal um málið áðan. Þeir gerðu svo sjálfir 26 ára gamlan mann af örkinni, kambslausann, og létu hann biðja um lyklana dýrmætu af bifreiðinni forboðnu.

Ekki málið! Hann þurfti ekki einusinni að sýna ökuskírteini!

17 svör

  1. Heldur þú að hvíti pikköppsalinn í Alabama myndi láta negra fá lykla af bíl …. til að prófa… glætan.

  2. Þú mátt reynsluaka Hyundainum mínum þó þú sért með hanakamb ;) hehe

  3. Common, ef þú vilt láta koma fram við þig af virðingu droppaðu þá þessum silly kamb. Það verður gaman að sjá þig útskrifaðan lögfræðing með hanakambinn, held að þú verðir að hugsa þinn gang ef þú ætlar ekki að tapa bisness út á hann þegar þar að kemur. Sorry man, veit að þetta sökkar en svona er lífið á eyrinni.

  4. Haha, djöfulsins órétti er þetta. Ég prufaði einu sinni bíl þegar ég bjó á Akureyri og bílasalinn spurði einskis, hann bara henti í mig lyklunum. Ég hefði alveg eins getað keyrt í burtu!

    Annars styð ég hanakambinn heilshugar, þrátt fyrir að ég þekki þig ekki neitt, datt bara hérna inn í gegnum b2. Var sjálfur með hanakamb á tímabili og þó ég hafi aldrei lent í neinu svona rosalegu bulli þá var það fáránlega erfitt að fá fólk til að taka mann alvarlega. Samt breytti ég ekkert um persónuleika eða hugarfar við það að breyta um klippingu!

  5. HAHA! Þegar ég var sjálfur á Ak 17.jún að prófa nýlega bíla var bara hennt í mig lyklum án þess að spyrja til nafns einusinni :Þ
    En alveg magnað hvernig þú skýtur á Akrureyska menningu í lok viðtalsinns, svona nett högg í nýrun á þeim.

  6. …og þarna býrðu ;)

  7. Maggi bara flottur á því. Ég kæri mig ekkert um að elta dutlunga fólks hingað eða þangað, þá gerði maður væntanlega ekki annað. Og kamburinn er ekki silly! Þú ert silly!

  8. Drengur, Drengur, Drengur, kominn í TV á Akureyri. Ég get ekki sagt að þetta hafi komið mér á óvart, enda “þrasgjarn” maður á ferð. Vonandi höndlaru frægðina betur en PH, annars gæti afinn gert þig arflausann af kvótamillunum ;)

  9. Sæll, Drengur. Flott framtak hjá þér, láttu liðið skammast sín! Sá tengil á b2, annars les ég reglulega hjá þér bloggið, og brá aðeins að sjá þig með kambinn því það er svo langt síðan ég sá þig síðast!! Bestu kveðjur frá Frans..

  10. Hanakambur er eitthvað svo töff dæmi ertu á lausu? Get rid of your girl sweetheart!

  11. [...] er eini maðurinn sem kemst upp með að kalla mig kommúnista á opinberum vettfangi. Dreng var neitað um að reynsluaka bíl því hann er með hanakamb. Tjékkið á viðtalinu við hann, algjör [...]

  12. Þeir eru bara svona á Bílasölu Akureyrar. Ef þú vilt fá þjónustu, verslaðu þá bíl annarstaðar :)

  13. Ég er hætt við að biðja þig um að skipta um hárgreiðslu. Ertu nokkuð til í að bera skóáburð á andlitið áður en þú ferð næst á bílasöluna?

  14. Ég myndi skilja að þér sé meinað að reynsluaka bíl ef þú værir súlbrúnn fm hnakki. Það ertu ekki!
    Svo er kamburinn bara hárgreiðsla ekki uppreisnaryfirlýsing, og að mínu mati drullutöff hárgreiðsla, amk fæ ég mér kamb bráðlega dreng til stuðnings legg til að móðir hans geri það sama til að sýna móðurást sína í verki!

  15. Neitað um að reynsluaka bíl “vegna útlits síns”! Tær snilld!

  16. Það versta við þetta er að ég er búinn að búa hérna í hátt í þrjátíu ár með örstuttri viðkomu í útlöndum til að afla mér þekkingar og reynslu, og lókal sjónvarpinu hefur aldrei þótt ástæða til að taka viðtal við mig allan þennan tíma þrátt fyrir ærin tilefni. Síðan kemur hingað einhver paunkara-laganemi að austan og fer að tuða yfir einhverju pínku misrétti (sem gæti aldrei gerst neinsstaðar annarsstaðar en á Akureyri, óneeeeeiiii alls ekki) og fjölmiðlar hlaupa upp til handa och fóta og blása upp þessa sögu eins og það sé eitthvað nýtt að það búi hérna nokkrir þröngsýnir Bjögga-Halldórs-elskandi Vélsmiðju-sækjandi bíla-seljandi smáborgarar. Ég á bara ekki til eitt einasta aukatekið orð.

  17. Djöfulsins rebbel ertu, bara með hanakamb, rífandi kjaft í fjölmiðlum og ég ætla rétt að vona að þú hafir samið andófstexta gegn bílasölunni líka. Ég vil allavega að þú vitir að ég er stoltur af þér og þú mátt verða söngvari í minni punk hljómsveit hvenar sem þú vilt.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.