Þegar blaðamannafundir verða fréttaefni

Í einfeldni minni hef ég alltaf haldið að blaðamannafundir séu haldnir til þess að einhver merkilegur aðili geti komið einhverju á framfæri við fjölmiðlaheiminn og jafnframt geti fjölmiðlaheimurinn sem slíkur spurt viðkomandi merkilegan aðila að einhverju.
En eitthvað hefur þetta ruglast síðustu árin. Nú les maður æ oftar fréttir af blaðamannafundum. Þ.e. þar sem blaðamannafundirnir sjálfir [...]

Konfekt

Þessir þættir hétu víst Konfekt, meira veit ég ekki, hef aldrei séð þetta fyrr. En þetta er greinilega snilld!

Pirruð móðir

Var að ræða við pirraða móður sem er að reyna að læra en getur það ekki fyrir stanslausri athyglissýki barna sinna. Ég spurði, í sakleysi mínu, hvort of seint væri að fara í fóstureyðingu. Dætur móðurinnar eru 8 og 15 ára eða eitthvað svoleiðis.
Hún sagði að það væri til önnur leið. Skilnaður og enginn umgengisréttur. [...]

Munurinn á bíl og viðbjóði

Það sem þarf í þessa uppskrift er eftirfarandi:
Einn bíll
Einn Polo
Keyrið bílinn einn stuttan hring. Setjist upp í Pólóinn og gerið slíkt hið sama. Endurtakið eftir þörfum, sem ætti að vera sjaldan því maður þarf bara að prófa Póló einusinni til að vilja aldrei gera það aftur.
Eftir að hafa staðið í þessu þá ættuð þið að [...]

Mótíf í stafrænum ljósmyndum

Nú eru stafrænar SLR myndavélar orðnar vinsælli en Pylsa með öllu nema steiktum. Allir og systir hans eiga svona græju og birta í gríð og erg listaverkin á netinu. Fjölmargar heimasíður tileinkaðar listrænni stafrænni ljósmyndun eru til og sumar hafa meiri tekjur en smáríki.
Ég hef gaman að góðum myndum og finnst þetta klárlega framför. Sem [...]

Jafnræðisreglan

Rómarsáttmálinn:
“…may take appropriate action to combat discrimination based on sex…”
Hehe… sex!

Flokkar fólks

Einn ágætur maður var í vandræðum með hvernig hann ætti að flokka fólk niður í hópa í tenglasafninu á heimasíðunni sinni. Hann var kominn með nokkra grunn-flokka sem honum fannst hljóma frekar óspennandi og ósanngjarnir gagnvart sumum.
T.d. fannst honum óþægilegt að setja fyrrverandi mág sinn í “Vinnufélagar” þó þeir ynnu saman, og honum fannst ekki [...]

Skóli eftir hádegi

Ég mæti í skólan eftir hádegi. Þó er ég svo heppinn að geta stundum unnið fyrir hádegi, eins og í dag. En ég hef veitt því eftirtekt að af þeim tólf bekkjarfélögum sem ég er með á MSN hjá mér er aldrei neinn kominn á fætur, svo hægt sé að sanna með óyggjandi hætti, fyrir [...]

Gestaþraut handa afa

Ég þykist vita, og ákveðnar vísbendingar benda til þess, að amma lesi bloggið hjá mér. Þessvegna ætla ég að útlista hérna þraut sem ég legg fyrir afa, amma getur prentað hana út á nýja flotta prentarann sinn.
Það sem til þarf í þrautina:
Eitt stykki skákborð
Átta peð sem hvert um sig leikur drottningu
Þolinmæði

Svona virkar hún:
Þú átt að [...]

Konur í skák

Nú mega þær kaupa reiðhjól, hringja í útvarpið og biðja um óskalög og jafnvel keyra bíla. Einhver sagði á útlensku “With equal rights comes equal responsibility” eða “Jöfnum rétti fylgir jöfn ábyrgð”.
Rétt í þessu var verið að krýna íslandsmeistara í skák…. kvenna. Stöldrum aðeins við. Ég skil vel að konur séu ekki látnar drullutapa fyrir [...]