Fimm árum of seint

Tölvur eru fimm árum á eftir mínum væntingum. Fyrir fimm árum var ég að basla við að keyra Championship Manager í tölvunni minni. Hún varla réði við helvítið og ekki var hægt að gera neitt í henni á meðan leikurinn níddist á minni, diski og örgjörva.

En nú er öldin önnur. Ég get verið með CM [...]

Lélegasta sjónvarpsefni heimsins

Ertu skarpari en skólakrakki? Miklar líkur eru til þess að svo sé. Börn eru frekar heimsk, það verður bara að segjast eins og er. Þau eru ekki fær um einföldustu hluti eins og t.d. að keyra bíl eða baka pavlovu. En börn geta samt verið skemmtileg. Þau gera krúttlega hluti og segja oft frá hlutunum [...]

Ber brjóst í sundi

Á vísi.is er haft eftir sænskum systrum: “Við viljum að brjóst okkar verði jafn sjálfsögð og kynlaus og brjóst karlmanna, svo við getum líka farið úr að ofan á fótboltaleikjum,”. Þessar konur vilja geta baðað sig berbrjósta í almenningssundlaugum líkt og karlar fá að gera.
Nú er ég ekki með sérlega stór brjóst en velti því [...]

Snillingur, íslendingur, frændi!

Gunnar Gunnarsson er meðal dáðustu rithöfunda þjóðarinnar. Gunnar var fæddur í Valþjófsstað í Fljótsdal en flutti átján ára gamall til Danmerkur til að ganga skólaveginn. Hann byrjaði ungur að skrifa og afrekaði margt á því sviði. Kallinn gaf út bækur sem urðu gríðarvinsælar í Þýskalandi og Danmörku. Síðar þýddi hann verk sín yfir á íslensku, [...]

Nóbelsverðlaun

Laxness var sá eini sem fékk Nóbelsverðlaun. Að fá ekki verðlaun heitir með öðrum orðum að tapa. Hættið að vera tapsár! Hættiði að væla. Hver er Gunnar Gunnarsson? Hefur einhver lesið eitthvað eftir hann? Hélt ekki. Haldiði þá kjafti með þennan danaskratta.

Ákjósanleg líkamsgerð

Áður en tíminn núna áðan hófst mættu tvær stúlkur sem lögðu fyrir okkur könnun á viðhorfum okkar til líkamsgerða. Við þurftum að svara þremur spurningum og áttum að vinna svör okkar útfrá ljótustu pennateikningum af líkömum sem til eru.
Þegar einhver fjölmiðill birtir niðurstöðurnar og mistúlkar þær þá veist þú, lesandi góður, að þetta voru ekki [...]

Hrekkjavaka

Hrekkjavökubúningur minn skilaði sannarlega tilætluðum árangri. Hrekkjavökubúningar eiga að vera hræðilegir og þeir eiga að ná því fram að hræða fólk.
Ég klæddi mig í sokkabuxur, háhælaða skó og í kjól. Allt var þetta í góðu gríni. Hinsvegar ber að minnast þess að ekki er hægt að neyða fólk til að brosa. Kærastan brosti. En það [...]