Ég sá heimildarmynd á BBC World í dag þar sem kom í ljós að sterk fylgni er milli jákvæðra viðhorfa til lífsins og velgengni almennt. Ég er þeirrar skoðunnar að hið fyrra orsaki hið síðara og hef því tekið upp jákvæð viðhorf til lífsins, enda langar mig að njóta velgengni.
Tenerífe er misjöfn eyja. Hér er [...]

Hér sé sól, hér sé jól

Gleðileg Tenerife jól til allra.
Ég skrifa hér af svölum hins glænýja hótels. Þegar við mættum til leiks var ekki enn búið að hreinsa steypurykið af gólfum íbúðar okkar. Þetta er bókstaflega glænýtt og í raun ekki tilbúið þegar við komum. En maður lætur slíkt ekki á sig fá.
Þetta er búin að vera tóm gleði hjá [...]

Hail to the king?

…eftir tíu ára bið? Verður 19. desember dagurinn?

Ég vinn við skúringar

Hér er maður sem, aftur á móti, er í góðu starfi á góðum launum.

Samviskubit

Ég er með pólitískt samviskubit þessa dagana. Ég stóð í þeirri trú að ég styddi Steingrím og félaga í Vinstri-hreyfingunni eitthvað framboði. Hafði fulla ástæðu til. Ég er genetískur vinstrimaður og ekki nógu gráðugur til að styðja arðrán íslenskrar náttúru. Af þessu að dæma er ég eins og klæðskerasniðinn að þessum stjórnmálaflokki.
En ég þykist hafa [...]

Hvaða fólk kýst þú?

Maður velur sér ekki ættingja og maður velur sér ekki fólk sem maður kýs. Það má vel vera að tíu á listanum sem þú velur séu valinkunnir snillingar þá geta verið tíu slefandi hálfvitar sem þú neyðist til að kjósa líka. Jújú, þú getur strikað út eins og vindurinn en vandamálið er að slíkt gerir [...]

Sín er nú hver áhættuspilamennskan

Nokkuð var um ekkifréttir í fréttatíma Sjónvarpsins í kvöld. Einna merkilegust þeirra var frétt þess efnis að fólk væri stundum spilafíklar og að sumir væru svo kræfir að tapa jafnvel milljónum. Einn kappinn átti víst að hafa tapað tólfhundruð þúsund krónum á einni kvöldstund í póker á netinu.
Ekki er um að ræða neina fíkn þegar [...]

Vorkennum

Stundum gleymir maður sér í því að vorkenna hópum fólks. Konum, löggum og sirkustrúðum. En sem betur fer fær maður yfirleitt nasaþefinn af raunveruleikanum öðru hverju og er hann yfirleitt nóg til að vekja mann upp af vondum draumi meðaumkunar.
Þegar Kolbrún Halldórsdóttir eða einhver álíka lætur gamminn geysa um ‘kynbundinn launamun’ eða hvaða svosem snobb [...]