Fréttablaðið… hver veit hversu margar blaðsíður!

Ég opnaði Fréttablaðið áðan og hugðist skella mér beint á bls. 26 til að lesa um handboltakappann Sverre Jakobsson. Ég fletti bunka af blöðum og hafna á bls. 16.  Ekkert mál, ég tek u.þ.b. 5 blöð og fletti. Nú er ég á bls. 4. Ég fletti áfram, ekki afturábak… bls. 4 hvur röndóttur rækallinn!
Búinn að [...]

Vorið er komið og grundirnar gróa…

…gilið og lækurinn.
Það er hlýindaskeið á Akureyri um þessar mundir. Bjart er einnig og almenn bjartsýni ríkir á flestum bæjum. Vetrardrunginn lekur af manni eins og skafl af þaki. Já, Hrafnaflóki, Eiríkur rauði og írskar þrælasnótir; hvað voruði að spá að flytjast Norður í rassgat.
En það sem ég vildi sagt hafa var að skrifstofustarfið er [...]

ÚtlEnska

Tengiliðir mínir á MSN eru stundum svo sniðugir, líkt og ég sjálfur, að bæta einhverjum spakmælum við heiti sín. Við skulum athuga hversu mörg eru á íslensku og hversu mörg eru á ensku.
Á ensku: 7
Dæmi: Success: Willing to do what the avarage person is not willing to do
Á íslensku: 0,75
Dæmi: Ég er ekki með sixpack, [...]

Reykingar bjarga mannslífum!

Í morgun var hún móðir mín að fá sér ferskt loft. Úr þakskeggi 86a lagði þá gufu. Mín hringdi í lögguna sem kom fljótlega og á eftir löggunni kom slökkvuliðið og dældi burt vatni.
Já, gömul hús í miðbæjum landsins eru í talsverðri hættu þessa dagana.

XBox

Sem sérlegur stuðningsmaður Microsoft hefur mér áskotnast XBox tölva. Ás- en ekki Ástþórsson nokkur var að drepast úr lágupplausn og henti þessu í mig. Kemur sér vel að eiga ekki drasl heldur Loewe því þá get ég keyrt component í SCART, eitthvað sem tíðkast ekki almennt í viðtækjum landans.
Græja þessi verður mest notuð til að [...]

Drengur fer á blót

Þorrablót eru vettvangur karlmennsku og kvenhörku. Púngar, brennivín og trylltur dans.

Purkur vísaði mér til sætis og var mér til samlætis þó ekki æti hann neitt af þessu karlmannlega

Þorri var gengilbeina og stóð sig með stakri prýði. Ég kláraði hákarlinn og spurði náðarsamlegast um meira. Þorri kom þá askvaðandi með þrefaldan lífstíðarskammt af hákarli með bros [...]