Engin ný Eyja!

Líklega þurfum við þá að reiða okkur á annað gos í líkingu við Surtseyjargosið.

Hversvegna eru lög og regla?

Fjölmiðlar hafa í auknum mæli snúið sjónum sínum að valdbeytingu lögreglu við hin ýmsu tilefni. Eflaust er erfitt að vera lögga. Einnig er erfitt að vera hálfviti. Þannig fyrir suma er þetta tvöfalt erfiði í hið minnsta. Nú tek ég fram að ég þekki hvorugt ástandið af eigin raun, mér bara skilst þetta því ég [...]

Þú getur allt sem þig langar!

Einhverstaðar óku síðustu kynslóðir út úr beygju uppeldisins á vondum stað og skröpuðu vinnusiðferðispústið undan barnabílnum. Þau sögðu “Þú getur gert allt sem þig langar… …Lilja Brá.”
Lilja Brá litla, eða Embla Sjöfn, eða Eldur Tandri ákváðu á því augnabliki að athyglissýki þeirra væri best borgið á farvegi listarinnar. Enga höfðu þau hæfileikana og ekki nenntu [...]

Þriggja tóna hænsni

Fyrir fjóra.
Tekur u.þ.b. 20-30 mínútur.
Fjórar meðalstórar kjúklingabringur. Helst af kjúklingnum en ekki saltsprautað verksmiðjueitur.
250g af heilhveitipasta (Spagetti)
1 stór rauðlaukur
200g brúnir sveppir
200g shitake sveppir
4 msk þurrkað esdragon
1 grænn chili pipar í stærri kantinum
olívuolía
truflusveppaolía
smá viský
smá vatn
salt
pipar
Fyrsta sem ber að huga að er að láta allan vibba leka úr kjúklingabringunum. Veltið þeim svo upp úr esdragoninu þannig að [...]

Kafír og niggari!

Barack Obama er maður sem myndi vinna kosningar allstaðar…
…nema í Bandaríkjunum
http://www.metacafe.com/watch/1318534/obama_faces_racism_in_west_virginia/
Þeir eiga hann ekki skilið bölvaðir!
En það eru náttúrulega vitleysingar allstaðar. Ég þykist vita að þó nokkuð sé í land þar til við eignumst pólsan forsætisráðherra eða tælenskan forseta. Kannski er munurinn á Vestur Virginíu og Íslandi bara sá að það reynir ekki á þessa [...]

Skríll gerir usla

Skríll og usli eru afar fögur orð. Hinsvegar lenti ég í usla að hálfu skríls og mér eru því ekki fögur orð efst í huga. Já, einhverjir bölvaðir krimmar brutust inn á lagerinn hjá mér og fóru með ránshendi.
Ruplararnir fóru þó miður fagmannlega að og styrkir það grun yfirvalda í bænum að líklega hafi verið [...]

Í matinn í kvöld…

Túnfisks og fiskibollu lasagne.
Ögra ég ykkur? Er lífssýn ykkar ógnað? Fæ ég ykkur til að hugsa?

Allir að fá sér jeppling!

Hverjum hefði dottið í hug að lengsta grein í heimi væri líka sú besta í heimi.
Lesið!