Brjáluð hugmynd

Ég var að fá mjög góða hugmynd. Er ekki málið að gera mæjónes úr svartfuglseggjum og Lýsi? Ég er sannfærður um að ég sé að leiða ykkur inn í nýtt skeið í matarmenningu mannkynsins!
Rauðan í svartfuglseggjum er afar ljúffeng. Mun bragðmeiri og áferðarfegurri en í þessum hefðbundnu dýraníðshænueggjum úr hitleraverksmiðjunum. Eflaust má gera besta mæjónes [...]

Heimur versnandi fer myndir

Horfði á tvær heimildamyndir í veikindunum. Annarsvegar An Inconvenient Truth eftir Al Gore og hinsvegar The Power of Nightmares eftir Adam Curtis. Báðar beina ljósinu að neikvæðum þáttum nútíma samfélags. Al Gore talar um gróðurhúsaáhrifin, eins og hvert mannsbarn veit, en Adam Curtis fjallar um hræðsluáróður í nútíma stjórnmálum.
Báðar myndirnar eru afskaplega góðar sem slíkar. [...]

Snillingurinn lætur sjá sig aftur

Jæja, Reynir Atli bara mættur aftur.

Sigurður Líndal “hérna dissast e-h”

Sjá á vísi. Ég afast alls ekki um að forsendurnar sem hann gefur sér séu réttar. Þ.e. að krúttkynslóðin geti ekki tjáð sig um nokkuð annað en knús og sæta hluti. Sú niðurstaða hans að gera þurfi strangari kröfur um íslenskukunnáttu er, að mínu mati, rétt. Ef þú kannt ekki eigið móðurmál þá ertu ekki [...]

Ellin er mætt

Nú er ég ekki ungur lengur eins og þið hafið kannski tekið eftir. Ég tek þó einna helst eftir því að ég er svo lengi að afmyglast á morgnanna. Sem og hitt að ég hreinlega verð að fara snemma að sofa ef ég á að forðast sjálfsmorðshugleiðingar yfir daginn.
Fór óvart á fætur klukkutíma áður en [...]

Sakleysi tölvuleikjanna á enda

Tölvuleikjamarkaðurinn er búinn að slíta barnsskónum. Sakleysið er horfið og bransinn orðinn að iðnaði. Á síðasta ári setti tölvuleikjaiðnaðurinn í Bandaríkjunum 9,5 milljarða bandaríkjadala í budduna.
Auglýsingar eru á næstu grösum og sífellt er verið að selja sömu gömlu leikina aftur. Ég spái því að næsta kreppa verði í þessum bransa.

Myllan drullar upp á hnakka

„Það gefur auga leið að sjónvarpsdagskráin er sú sama, alveg óháð því hvort gömul eða ný viðtæki eiga í hlut. Það sama á við um brauð og aðra bakaravöru, hvort heldur framleidd með nýja eða gamla laginu. Innihaldið er það sama. Gæðin eru á hinn bóginn meiri þökk sé betri tækni, á sama hátt og [...]

Fasteignavefur mbl.is

Fasteignavefur mbl.is hefur algerlega komið í stað Innlit-útlit hjá sumum. Þetta er besta leiðin fyrir fólk að fá útrás fyrir hnýsiþörf sína. En eitt ögn einkennilegt virðist vera orðin tíska hjá fasteignasölum en það er að reyna að tala upp fermetrafjölda risíbúða.
Íbúð í risi
40fm
Ath. fermetrafjöldinn er mun meiri en þetta vegna þess að íbúðin er [...]

Melrakkasléttan bíður

Undanfarnar nætur hefur mér tekist að sofna um tíu leytið. Vakna svo eldhress og dríf mig í vinnuna. Hreyfingarleysið sér svo til þess að ég er dauðþreyttur þegar ég kem heim, ét og sofna. Frábært líf fyrir mig og mína.
En betur má ef duga skal. Eftir u.þ.b. 7 klukkutíma pökkum við tékkneska fólksvagninn fullan af [...]

Bakstur er lögvernduð starfsgrein

Í fjölmiðlum er nú rætt um þá herkænsku sumra stórmarkaða að hita upp verksmiðjudeig frá útlöndum og segja ógeðið sem úr verður “Bakað á staðnum”. Bakarar eru ekki alveg sáttir enda er iðn þeirra lögvernduð hér á landi.
Þá myndi geimveran frá Mars halda að bakstur þessarar lögvernduðu stéttar væri eitthvað gúrmei. Því fer víðs fjarri. [...]