Posted on júlí 28, 2008 by drengur
Við gamli rifum okkur upp á súlur í dag. Gangan var býsna strembin en stóð þó ekki mjög lengi yfir. Við lögðum af stað upp klukkan 11:30 og vorum komnir upp á Súlur um tvö leytið. Við ákváðum þá að ráðast strax á næsta tind sem er Syðri-Súlur og átum hann í eftirrétt. Gangan niður [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on júlí 27, 2008 by drengur
Margur harðlínu femínistinn er með dældaða sál. Freud reyndi að skilgreina heilbrigði útfrá óheilbrigði en við vitum í dag að það er líklega ekki rétta leiðin. Rétt eins og konan sem fyrir einhverju síðan taldi sig sjá klám út úr fermingabjullu á Smáralindarbæklingi þá telur karlfemínisti nokkur nú að Baggalútur upphefji nauðganir.
Sjá á vísi.is
Áráttuhneigð ber [...]
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on júlí 25, 2008 by drengur
Guð má vita hversu margar aldir eru liðnar síðan við fórum að reyna að vera fyrst með fréttirnar. Hitt er víst að með tilkomu netsins ættu fréttirnar að birtast þar fyrst allra miðla, enda þarf ekki að ná neinu dead-line fyrir prentun eða koma þessu í tímasetta útsendingu.
Hvaða vefmiðill er þá fyrstur með fréttirnar?
Ég fæ [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 5 ummæli »
Posted on júlí 24, 2008 by drengur
Nægir að segja að étið var frá klukkan níu til klukkan hálf tólf. Fjórar tegundir af rúllum og lax í þokkabót. Þetta var snilld og ég efast um að ég eigi eftir að éta nokkuð annað en japanskt hráfæði það sem eftir er. Reyndar át ég eiginlega fyrir lífstíð. Á veitingastað borðar maður kannski 5-6 [...]
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on júlí 23, 2008 by drengur
Japanir eru þessir með vélmennin og ninjurnar. Kínverjar eru þessir með ópíumið og kung-fu-ið. Ég velti því fyrir mér hvort japanskt Sushi á veitingastað á Íslandi sé eins og kínverskur matur á veitingastað á Íslandi. Með öðrum orðum; hversu ekta getur þetta orðið.
Heimatilbúið Sushi verður því prófað í kvöld.
Flokkað undir: Uncategorized | 3 ummæli »
Posted on júlí 14, 2008 by drengur
Akureyri er afskaplega fallegur bær, á því leikur enginn vafi. Þó svo að ljótleikinn aukist í réttu hlutfalli við hæð yfir sjávarmáli þá er slíkt ekki áhyggjuefni fyrir miðbæjarrottur eins og mig. Á Akureyri er líka alveg hreint mögnuð íþróttaaðstaða. Eins og einn góður sagði þá er verið að “…búa til veðurlausa aumingja” í þessum [...]
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on júlí 12, 2008 by drengur
Í anda Nietzsche ætla ég að lýsa yfir dauða hugmyndar. Þið heyrðuð það fyrst hér. Nýfrjálshyggjan er dauð. Hugmyndir sem hafa tröllriðið fjármálamörkuðum heimsins síðustu þrjátíu ár eru komnar á síðustu metrana. Minni reglur og meira frelsi eru orsökinn fyrir kreppunni núna, bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi og allsstaðar annarsstaðar.
Þegar menn eins og Ben [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 6 ummæli »
Posted on júlí 10, 2008 by drengur
Frá og með deginum í dag rukka ég kr. 6.500- fyrir klukkutíman í Windows tengdri tölvuvinnu. Ég hef unnið ókeypis í u.þ.b. 15 ár og ég nenni því ekki lengur. Hef heldur ekki tíma. Ég skal hjálpa ykkur að mála sólpallinn eða við að flaka fisk. Ekki meira Windows fyrir mig takk.
Ég skal hjálpa ykkur [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 12 ummæli »
Posted on júlí 4, 2008 by drengur
Ljóð dagsins er nýr liður hér á síðunni og kemur ekkert endilega aftur. Ljóð dagsins að þessu sinni er Delicious Babies eftir Penelope Shuttle.
Because of spring there are babies everywhere,
sweet or sulky, irascible or full of the milk of human kindness.
Yum, yum! Delicious babies!
Babies with the soft skins of babies, cheeks
of such tit-bit pinkness, tickle-able [...]
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on júlí 3, 2008 by drengur