Í anda Nietzsche ætla ég að lýsa yfir dauða hugmyndar. Þið heyrðuð það fyrst hér. Nýfrjálshyggjan er dauð. Hugmyndir sem hafa tröllriðið fjármálamörkuðum heimsins síðustu þrjátíu ár eru komnar á síðustu metrana. Minni reglur og meira frelsi eru orsökinn fyrir kreppunni núna, bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi og allsstaðar annarsstaðar.
Þegar menn eins og Ben Bernanke eru farnir að biðja um regluverk utan um viðskipti með svokallaðar markaðsvörur (í hans tilfelli Olíu) þá er nú hætt við að einhver geri í brókina sína uppi í Valhöll.
Við sem erum vinstramegin í íslenskri pólitík og kommúnistar í Bandaríkjunum höfum aldrei haft trú á því að frelsi í viðskiptum eigi að vera ótakmarkað. Einhverjir kallar úti í bæ eiga ekkert að hafa leyfi til að versla með lifibrauð fólks á hinum svokölluðu mörkuðum. Mörkin verða að liggja miklu nær höftum en frelsi heldur en þau gera núna.
Augljós ummerki í Rússlandi eftir græðgisvæðinguna þar upp úr ‘90 um muninn á algjörum höftum og algjöru frelsi hefðu átt að snúa mörgum nýfrjálshyggju-tittinum. En menn blinduðust af öllum milljörðunum sem fáir náðu að sanka að sér. Stuttbuxnadrengir Davíðs hefðu átt að hlusta á varnaðarorð þeirra sem sögðu að afhending gríðarlegs fjármagns til fárra einstaklinga í gegnum svokallaða einkavæðingu væri bæði siðlaust og óráðlegt. Þegar ríkið tapar peningum er það samfélagsins að skipta sér að því. Þegar milljarðamæringarnir gera það kemur slíkt engum við nema þá helst til að hlaupa undir bagga með þeim.
Fátækt í Rússlandi gjörsamlega rauf skalan þegar fyllirafturinn Boris Jeltsin tók að borga til baka sínum stuðningsmönnum. Lífeyrir fólks hætti að berast og gamla fólkið drapst í hrönnum. Allt til þess að hin sívaxandi millistétt og hin gráðuga yfirstétt gætu eignast meira af lúxusvarningi. Í staðinn fyrir kúgun og skort upplifði stór hluti rússnesku þjóðarinnar yfirgang og svelti. En minni hluti en upplifði bara skort undir glötuðu áætlunarmódeli kommúnista. Mannfórnir voru þess virði, líkt og alltaf er tilfellið í sögu Rússlands.
En í stórveldastjórnmálum eru bara tveir pólar; hið illa og við. Ekkert er þarna á milli. Norður Evrópa og þá sérstaklega Norðurlöndin þóttu ekki nógu stór dæmi um hagkerfi til að hægt væri að taka þau alvarlega. Sovétið var ömurlegt og þess vegna hlýtur nýfrjálshyggja í efnahagsmálum að vera best í heimi því hún er á öndverðum meiði við áætlunarhagkerfi.
Menn misstu sig. Síðustu tíu árin hafa menn verið að missa sig á ólíklegustu stöðum. Á Íslandi, í Afríku. Allstaðar trúðu menn á að markaðurinn myndi sjálfkrafa sjá fyrir jafnvægi þegar einhverjum toppum væri náð. Menn ætluðu að vera búnir að læra á kreppunni ‘30. Þess vegna var í lagi að slaka aðeins á þeim neyðarúrræðum sem komið var á í kapítalískum hagkerfum eftir kreppuna miklu.
Takk kærlega!
Ég tók ekki þátt í neinu helvítis góðæri. En ég þarf svo sannarlega að borga fyrir andskotans hálfvitaganginn í ykkur. Ég þakka ykkur kærlega fyrir stuttbuxnatittirnir ykkar.
Mbk,
Drengur Óla Þorsteinsson
Krossfari gegn kaldastríðshugmyndum
Í næsta þætti verður fjallað um nýíhaldið og hvernig það er að telja okkur trú um að undir hverjum steini leynist hættur. Fær okkur til að afsala okkur öllum réttindum til að verjast ímynduðum hættum.
Flokkað undir: Uncategorized
Heyr heyr
Kommúnisminn mistókst stórfenglega, kapítalisminn er á langleið með að mistakast, sósíalisminn hefur margmistekist í skjóli “blandaðs hagkerfis”. Anarkisminn er dauðadæmdur áður en hann byrjar. Einræði hefur mistekist oftar en hægt er að hafa tölur á. Lýðræðið hefur síðan mislukkast með því að koma öllum fyrrnefndum stefnum á aftur og aftur. Það eina sem breytist á milli stjórnkerfanna og hagkerfanna er á hvaða fjósbita púkinn þarf að sitja til að fitna.
Eina leiðin til að fá fullkomið stjórnkerfi er að losa sig við stærsta orskavald vandræðanna, mannskepnuna. Manneskjan er ákaflega einföld, sama hvaða flokka eða stefnur hún aðhyllist er í raun bara ein stefna sem einstaklingurinn aðhyllist, skara eld að eigin köku.
NIÐUR MEÐ MANNKYNIÐ! FÓLK ER FÍFL!
Sæll. Var búinn að rita 1813 orða komment á ferðatölvuna þegar hún þurfti athygli manns sem kostr 7.500 kr klst .Sbr færslu þína áður. Ákvað af röggsemi að ekki skyldi ég láta ræna migóvarinn snöggvast heldur hringja í Dreng og láta hann redda þessu og stinga sjö og fimmkallinum í vasann
. En.í annað.. Eins og Hannes er kveðinn í kútinn og Davíð fjarar út á feitum launum þá fjara hugsjónir þessara manna út. Einhverstaðar hefðu þeir verið látnir svara til saka vegna þess skaða sem hugsjónir þeirra og gerðir hafa valdið okkur örmum þegnum þessa lands. Sem betur fer er ekki svo og vonandi verðum við feðgar ekki í höft leiddir skoðanna okkar vegna. Enn er svigrúm fyrir frjálsa hugsun (vinstra megin). Sagan mun leyfa okkur að arga út um grundir;;
Ég sagði ykkur þetta allann tímann…Friedmann er fífl og Hannes engu betri og Oddson var bara fyndinn…
Því miður er það alltaf þannig,eftir stórgróða og stórtap að lítilmagninn situr alltaf eftir með tómlega elitandii augu í veskið horfandi eftir góðæri, kaupauka,gengishagnaði, eftirlaunabónusidavíðs, kaupréttarsamningi, starfslokasamningi, arðgreiðslum, kaupréttarsamningum fyrirgreiddra og orkuveitu reykavíkur og annarra sem (yfir)taka eignir okkar (almennings) og láta sem þeir hafi “séð það fyrst” og þar með hafi eignarrétturinn myndast sbr Blöndal / Sparisjóðurinn (Fé án hirðis.). Ef aur er að sjá og hann var gerður af mér og mínum og ég vissi ekki að hann var til er þá nauðsynlegt að Pétur og Hannes eignist aurinn af því þeir ” sáu hann fyrst?
Já ég (almúginn) kyngi hverju sem er af því ég trúi á Davíð og Björn Bjarna og held með þeim í kosningum og eru bestir. Nei og aftur nei. Hvor er meiri hamingja Kúbubúa (Kúba hefur verið ásýnd misheppnaðs kommúnisma tils tuga ára). Eða hamingja hins vellauðuga ameríkana (sem hefur aura handa á milli og við getum samsamað okkur við)???????Gæti gert þetta meira og betur eins og allt annað, hef bara ekki tíma í það,
Gúdd bæ
Bráðfallega skrifað að vanda.
BG 4evah
Huhh… Ég byrjaði að lesa en sá fljótlega að ég myndi ekki skilja þetta svo ég hætti eftir fyrstu málsgrein. Þetta (og öll kommentin hérna fyrir ofan) er samt örugglega rosa fínt.
Og talandi um BG…Bara sería 1 og 2 eru til í Skífunni í Kringlunni. Akkúrat það sem ég er búin að sjá. Drífðu þig að kaupa nýju seríurnar svo ég geti fengið þær lánaðar í haust