Posted on ágúst 30, 2008 by drengur
Það er bara eitt sem Purkurinn hatar meira en snobb, það er kertavax. En hann varð fyrir barðinu á hvoru tveggja í gærkvöldi. Snobbið kom í heimsókn, að hans mati, með lögfræðiteiti gríðarlegu. Ekki eru allir á eitt sáttir um skilgreiningu Purks á téðu partýi, en það breytir ekki skoðun hins sannfærða.
Til að gera illt [...]
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on ágúst 26, 2008 by drengur
Ég keypti mér kort í Átaki sem er svona ofur svöl rosa hipp og kúl arkitektúr ríka fólksins upp úr 1975. Vatn lekur á veggjum, gluggarnir eru stórir og “Vá, húsið svífur á vatninu!” Steinsteypa þykir ennþá flott, rétt eins og hún þótti í Róm fyrir rúmlega 2000 árum. Já þetta er alveg voðalega flott.
Mætti [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 4 ummæli »
Posted on ágúst 24, 2008 by drengur
Árið 2008 er ár metalsins í einhverju tímatali kannski einhverstaðar. Nafn með rentu enda nýtt efni með Slipknot og Metallica væntanlegt. Ég er búinn að renna Slipknot plötunni 3-4 sinnum í gegn og hún er æði. Svo má einnig nálgast nýtt lag með sjálfum Metallica og félögum.
Í þessu lagi má heyra ýmsa frasa úr öllum [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on ágúst 23, 2008 by drengur
Loksins eru þeir bestir! Þetta er í fyrsta skipti sem þjálfaranum tekst að virkja alla leikmennina og láta þá alla hafa hlutverk sem hentar. Allt í einu skjóta skytturnar okkar og markmennirnir okkar verja. Silfrið í höfn og ekki hægt að biðja um meira. Frábært.
Flokkað undir: Uncategorized | 1 ummæli »
Posted on ágúst 12, 2008 by drengur
Um helgina förum við Hildur á ættarmót einhverstaðar í Sælingsdal sem er einhverstaðar á milli Færeyja og Ameríku. Eiðisættin heldur þar upp á ættartengslin og étinn verður silungur með stropuðum eggjum og blýmenguðum rófum.
Flokkað undir: Uncategorized | 5 ummæli »
Posted on ágúst 5, 2008 by drengur
Þá loksins treystir mammansdrengs barninu sínu á ný og hefur yfirgefið litla ástarengilinn sinn. Ísskápurinn og uppþvottavélin eru enn í gíslingu og óútséð með framhaldið. En mig langar að nýta þetta tækifæri og þakka henni Mömmu kærlega fyrir hjálpina síðasta árið eða svo.
Flokkað undir: Uncategorized | 6 ummæli »
Posted on ágúst 2, 2008 by drengur
Þegar við Mamma fórum til Tenerife um jólin gerðist ýmislegt markvert. Eitt af því var þegar við fórum á Hooters. Hooters, fyrir þá sem ekki vita, er svona veitingastaður ala Ruby Tuesday’s, TGI Friday’s og American Style ‘but with a twist’ (mamma: að viðbættum rúsínum).
Á Hooters starfa þjónustustúlkur sem eiga ekki bara að bera fram [...]
Flokkað undir: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on ágúst 1, 2008 by drengur
Svona dreymdi mig um að sumarið yrði í allan vetur. Raunin varð allt önnur. En vegna þess hversu seint góða veðrið kemur þá verður minning manns af sumrinu væntanlega sú að veðrið hafi verið svona bróðurpart sumars, sem er lygi.
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »