Forseti hvar ert þú

24. gr. Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, [áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið],1) enda komi Alþingi saman eigi síðar en [tíu vikum]1) eftir, að það var rofið. [Alþingismenn skulu halda umboði sínu til kjördags.]1)

Þjóðarstoltið fær hjartahnoð

Ég horfði á kvennalandslið Íslands í kvennafótbolta í gær. Mjög kvennlegt. Þær gjörsamlega völtuðu yfir áhugalausar írskar stúlkur. Okkur sem heima í stofu sátum fannst heldur lítið um rauðhærðar stúlkur hjá þeim írsku. Vonbrigði Jóns Inga minnkuðu þó talsvert þegar leikmaður Íra númer tvö kom á skjáinn.
En nú er s.s. Ísland komið á EM í [...]

Skoðanakönnun Gallup

Gallup er nýbúið að mæla fylgi íslenskra stjórnmálaflokka. Fjölmiðlar eru búnir að hamra á því hversu mikið Sjálfstæðisflokkur virðist falla í þessari könnun. Miklar fréttir þykja að Vinstri GrænIR eru orðnir stærri en Sjálfstæðisflokkurinn og að Samfylkinginn sé orðinn stærst flokkur landsins.
Fáir flokkar eru jafn hataðir og Vinstri Grænir nema ef vera skyldi Sjálfstæðisflokkurinn. Fólk [...]

Kynslóðirnar

Agli Helgasyni barst þessi pistill og birti hann á síðu sinni. Ég endurbirti hann hérna án eiginlegs leyfis… en þetta er nú Internetið. Hvað segiði?
Vítisvél andskotans
Lengi hef ég haft efasemdir um verðtryggingu lána – – og raunar frá upphafi 1979. Steingrímur Hermannsson talaði um að það hefðu verið mistök 1983 að frysta ekki lánin og [...]

Gjaldeyrishvað

Jæja. Eins og maður óttaðist þá er ljóst að Gjaldeyrissjóðurinn hefur gert þá kröfu að íslenska þjóðin borgi fyrir vitleysuna undanfarin ár, og þá helst þeir sem forðuðust áhættu. Stýrivextir Seðlabankans voru hækkaðir í 18% rétt í þessu.
Stýrivextir Seðlabankans eru nefnilega svo ofboðslega öflugir til að vinna á verðbólgunni.
Mig langar að drepa einhvern.

Bók mánaðarins

Bókin með titlinum sem Quagmire hefði getað fundið upp á “Getting to YES: Negotiating Agreement Without Giving In”. Hef ekki hugmynd um hvort þetta er góð bók eða vond bók, en þar eð þetta er skólabók leyfi ég mér að halda að hið síðara sé líklegra.
Þetta er bók mánaðarins vegna þess að með því að [...]

Kennedy vorra tíma

Hver ætli sé þá Muhammed Ali?

Þessi ræða er svolítið mögnuð.

Hvar verður sparað hjá Akureyrarbæ?

Þegar sveitarfélag fer óvarlega með fjármuni; geymir þá á ótryggum stað eða tekur áhættu með þá, byggir hallir til heiðurs Mammoni, dekrar við illa rekin Íþróttafélög og svo framvegis, nú, hvar verður þá skorið niður?
Yfirvinna starfsmanna bæjarins verður skert. Þeir sem ná endum saman með meiri vinnu en þykir æskileg eiga að hætta að sinna [...]

Bubbi í útvarpinu

Ég er að hlusta á nýja þáttinn hans Bubba á Rás 2. Hann er með geðlækni í heimsókn. Ég ímynda mér að Bubbi sé oft með geðlækni í heimsókn. Ég öfunda hann. Ég væri alveg til í að vera með geðlækni hérna hjá mér.
En Bubbi er einmitt að tala um ástandið sem nú er og [...]

Metallica á Stöð 2

Mér var að berast nýi diskurinn með Metallica, Death Magnetic, í pósti. Ég er búinn að hlusta talsvert á glæpsamlegar mp3 útgáfur af disknum og hefur ekki til hljómgæðana koma hingað til.
Sökin liggur ekki hjá mp3 algoriðmum að þessu sinni heldur hjá hvaða svo sem hálfvita sem ákvað að hægt væri að senda diskinn í [...]