Metallica: Death Magnetic – II Kapítuli

Er kominn með í hendurnar MP3 útgáfu af Rock Star útgáfunni af Death Magnetic. Sándið er 100x betra en á geisladisknum. Grunsemdir mínar sem birtust í færslu fyrir nokkru eru á rökum reistar. Þetta var s.s. algjörlega ónauðsynlegt.

Í skjóli nætur

Gróa segir að nú keppist auðmennirnir við að afskrifa skuldir sínar við nýju bankana í gegnum spillingalínur sínar. Allt er þetta mögulegt sökum bankaleyndar. Á meðan blæða minni fyrirtæki út sökum ósveiganlegs viðmóts þessara sömu banka.
Í dag þarf hinn venjulegi maður að bjóða margfaldar tryggingar fyrir lausafé en milljarðarnir streyma út til þeirra aðila sem [...]

Hannes

Bara að minna á bloggið hans Hannesar. Hann og stuttbuxurnar hans láta ekki segjast. Áfram frjálshyggjan!

Afþreyingarblogg

Djöfulli er maður ógeðslega pólitískur og leiðinlegur alla daga. Er ekki tími fyrir smá grín og glens?
Hver er munurinn á snáki og Sjálfstæðismanni?
Annar er slímugur, skríðandi, skósveinn satans.
Hinn er bara snakur.
Búrrúmmtiss?

Rífumst ekki um Dabba kóng

Davíð Oddsson á það ekki inni hjá okkur að við eyðum tíma í að rífast um hann. Hvort hann ber alla, einhverja eða enga ábyrgð vitum við. Við þurfum ekkert að rífast um það. Hinsvegar verða menn að horfast í augu við það að Samfylkingin er búin að bregðast. Hún er búin að bregðast kjósendum [...]

Finnland í sumar

Eins og alþjóð veit þá spilar íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu á Evrópumótinu í sumar. Í dag var dregið í riðla og lenti Ísland í riðli með Frakklandi, Þýskalandi og Noregi. Við eigum sumsé ekki séns á að komast upp en á móti kemur að hver einasti leikur verður stórleikur fyrir íslensku konurnar. Vitiði hvort þetta [...]

Guðni segir af sér

Þar sem tveir menn segja af sér þar er framsóknarflokkur!
Þó að ástæður þessarar afsagnar séu nú ekki rómantískari en svo að þær séu í þágu flokksins, líkt og flestar aðgerðir allra stjórnmálamanna á Íslandi, þá þykir mér nokkuð til hennar koma. Ekki væri úr vegi að fleiri tækju sér hann Guðna til fyrirmyndar.
Nú þarf að [...]

Pistillinn sem ekki kom

Hérna ætlaði ég að skrifa mikinn pistil um hvernig græðgis- og frekjukynslóðirnar hefðu skilið eftir sig sviðna jörð hérna á Íslandi fyrir okkur klám- og krúttfólkið en þar sem ég lifi mínu lífi alfarið eftir stjörnuspá moggans þá get ég það ekki:
Vog: Ekki þrasa eða fara í vörn, þó að þér finnist sem einhver sé [...]

Kreppuráð frá hagsýnni húsmóður

Ég er alveg fruntalega hagsýn húsmóðir þegar kemur að matarinnkaupum. Enda hefur það haldið í mér lífinu í góðærinu og á eflaust eftir að gera í kreppunni.
1. Ekki kaupa neitt í 10/11. Ef þú þarft nauðsynlega að versla inn á nóttunni veldu þá einhverjar af hinum búðunum. Lúmskt hvernig einstakar vörur 10/11 geta verið 100-200% [...]

Greinarábending

Hér er fyrrum fiskverkakona að tjá sig.