Gleðilegt ár

Takk fyrir gamla. Vonandi deyr enginn í nótt.

Í jólagjöf til ykkar: samlíkingar

Ég fer nú líklega Austur á heimaslóðirnar á morgun. Geri mér vonir um að ná að slappa eitthvað af. Ætla ekki að gera við eina einustu tölvu yfir hátíðirnar (veit samt að það á ekki eftir að rætast) og helst ekki að vinna handtak. Fyrir liggur að byrja að skrifa lokaritgerð en ég er ekkert [...]

drengur.simnet.is : 12.02.2002 #2

Sprengidagurinn var, rétt í þessu, haldinn hátíðlegur á mínu heimili. Það væri ekki frásögum færandi ef ekki væri fyrir það að ég er búsettur í landi hinnar hræðilegu matarmenningar, Svíþjóð. Jim Henson sá meira að segja ástæðu til að kalla kokkabrúðuna sína, sem ekki kunni að elda, “Sænska kokkinn” og þýðir það einfaldlega að Henson [...]

drengur.simnet.is : 12.02.2002

Ótrúlegt hvað ég er einstaklega slappur að tileinka mér nýjustu tækni og vísindi hverju sinni. Betur má ef duga skal og hér er kominn heimasíða í einkar nútímalegum stíl. Vitaskuld er hönnunin öll eftir mig og bundin höfundarréttarlögum. Ég vara ykkur við, þið þjófapakk, ég er á samningi við Stef: “Félag Fégráðugra Tónlistarmanna.” Núna ætti [...]

Kerlingabækur

Það er ekki tekið út með sældinni að vera í Vinstri Grænum (í karlkyni). Maður þarf að þola allskyns vitleysu þar líkt og í öðrum stjórnmálaflokkum. Vitlausasta vitleysan er nú samt þetta kvennfrelsiskjaftæði alltaf hreint.
Áðan fékk ég bréf frá flokknum. Undir það var kvittað “Fjölkvennum”. (Sbr. Fjölmennum)
Fjölkvænum segi ég nú bara!

Íslenskur jafnaðarmaður

Hún Ingibjörg er ekki ósvipaður jafnaðarmaður og Gylfi Arnbjörnsson eða Jóhanna Sigurðardóttir! Frábært alveg!
Hátekjuskattur er bara táknrænn!
…so… er þá jafnaðarstefnan bara táknræn líka?

All nightmare long

Ég er búinn að setja Metallica límmiða á fartölvuna mína.
Ég er fjórtán!

“Mótmælendur á menntaskólaaldri”

Það dylst fáum að fjölmiðlar á Íslandi hafi endanlega skrifað undir andlátstilkynningu sínu á síðustu vikum. Vanmáttugt lið fast í drottningarviðtalaviðjum síðustu áratuga sem gagnrýnislaust skiptir sér í fylkingar sem verja auðvaldshafa eða stjórnmálamenn gegn almenningi í landinu.
En algerlega kostulegt finnst mér hversu þeir rembast að aldurgreina hópa mótmælenda. Mig langar að benda á að [...]

Rúnar Júl 1945-2008

Snillingur

Tvífarar

Báðir hafa einstaka dáleiðsluhæfileika.