Posted on janúar 27, 2009 by drengur
Fyrir rétt um 10 árum síðan talaði ég við afskaplega áhugaverðan mann sem hafði langa reynslu að baki í iðrum íslensks samfélags. Fátt var ómerkilegt sem þessi maður sagði mér en eitt stóð þó klárlega upp úr:
Polítískt hlutverk forseta Íslands.
Maður þessi sagði mér, og sagðist hafa fyrir því heimildir frá fyrstu hendi, að embættistíð Frú [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on janúar 27, 2009 by drengur
Jæja. Nú á ég bara svona 4 mánuði eftir af skólanum. Þá ætti ég að vera kominn með eitt stykki próf. hvað maður gerir þá er ekki gott að segja en núverandi atvinnu- og skólasamband er að valda stórkostlegri geðveiki hægt og rólega.
Ekki er svo á það bætandi hvað fólk getur verið mikið fífl. Vonandi [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 1 ummæli »
Posted on janúar 23, 2009 by drengur
Ég syrgi ekki skattana sem dregnir eru af launum mínum um hver mánaðarmót. Ég geri mér grein fyrir að uppihald velferðarsamfélags kosti sitt. Þó svo að sjálfstæðisfíflin hafi verið á góðri leið með að rústa þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað í íslensku samfélagi síðan land byggðist, þá víkja þeir brátt. Good riddance. (útlenska, [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 14 ummæli »
Posted on janúar 21, 2009 by drengur
Ath. það er bannað að nota piparúða! Ekki gera það. Þessi uppskrift er fyrir þá sem vilja verjast geimverum frá Xglorg 4 sem íhuga að ráðast á jörðina. Eina vopnið gegn þessum geimverum er piparúði!
Í piparúða þarf maður ekki sterkan pipar, eins og habanero eða eitthvað þannig. Venjulegur rauður chillipipar dugar, maður verður bara að [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 6 ummæli »
Posted on janúar 19, 2009 by drengur
Er búinn að vera að skoða Internetið í fyrirheitna landinu, Noregi, upp á síðkastið. Eftir miklar stúderingar sýnist mér að Noregur sé ekki verri en Ísland nema að einu leyti. Norskan er á villigötum. Þetta er tungumál sem er ekkert annað en afbakaður dönsku-bastarður. Ef ég flytti til Noregs þá myndi ég samt sem áður [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on janúar 18, 2009 by drengur
Finnið þrjár villur
Flokkað undir: Uncategorized | 2 ummæli »
Posted on janúar 12, 2009 by drengur
Setti mitt fyrsta myndband inn á Youtube! Er ég ekki frægur? Þetta er myndband af læriföður mínum í þolinmæði honum Sajóh. Njótið.
Flokkað undir: Uncategorized | 6 ummæli »
Posted on janúar 10, 2009 by drengur
Þegar kemur að dýrum veigum er um auðugan garð að gresja í ágætum. En til er drykkur sem jafnast á við flottustu vín og bestu viskí og koníök. Verðið er mun lægra og áfengismagnið er ekkert.
Dr. Pepper!
Drykk þessum kynntist ég fyrst þegar Steve og hvítaúthverfapossé-ið hans fóru með mig á einhvern af verri skyndibitastöðum Bandaríkjanna [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 6 ummæli »
Posted on janúar 6, 2009 by drengur
Sæl veriði.
Í kringum 20. desember keyrðum við Hildur á Skoda í samfloti við Auði og Hörð til Þórshafnar. Ferðin var frekar tíðindalítil þar til Þistilfjörðurinn mætti undir himininn. Þistilfjörðurinn hefur furðuleg áhrif á himinhvolfið því hann gerir það flott og spennandi. Ég hef eiginlega aldrei séð neitt merkilegt á himninum við Eyjafjörð, en í hvert [...]
Flokkað undir: Uncategorized | 5 ummæli »