Óréttlæti

Ekki er óréttlætið endilega minna í dag en það var fyrir hálfu ári síðan. Bankarnir eru ein helsta uppspretta þessa óréttlætis enda eru Bankar í eðli sínu siðblindir; ellegar væru þeir ekki til. Dyggur lesandi sendi mér fyrirspurn í dag þar sem hann veltir fyrir sér afskriftum skulda einstaklinga í ljósi þeirra afskrifta sem fyrirtæki [...]

Mannkynið eygir von

Forval

Kynningarbæklinginn er að finna hér.

Samfélagslegt réttlæti

Ójöfnuður, spilling og ómanneskjulegt samfélag sem hyglar græðgi og refsar drenglyndi er blákaldur raunveruleiki sem við stöndum frammi fyrir. Breyta þarf gildum og lagaumhverfi til að vekja von ungs fólks um framtíð sem felur í sér eitthvað annað en þrældóm og skuldaklafa.
Endurskipuleggja þarf flokkakerfið í þágu lýðræðislegra sjónarmiða, útrýma flokkspólitísku dægurrausi og endurvekja samfélagslegt traust.
Ég [...]

Stjörnuspáin 17. feb.

Vog: Skoðanir þínar hafa vakið nokkra andstöðu sem þú þarft að taka tillit til og yfirvinna með fullri sanngirni. Gerðu allt sem þér er unnt.

Stjörnuspá

Vog: Einbeittu þér að því sem máli skiptir og láttu önnur mál lönd og leið. Stundum er betra að vinna með en reyna að kollvarpa öllu.

Inn við beinið

Þegar andaboltatímabilið var í hléi dundaði Stebbi sér einn í tölvunni. Þegar hann var búinn að klára allar vafasömu síðurnar í rúntinum sínum opnaði hann stundum GIMP.

Enn og aftur hávaði

Fyrir þá sem ekkert botnuðu í röfli mínu um hljóðþjöppun þá er hérna einfalt skýringarmyndband. Vassagú.

Sverrir bloggar

Góðar fréttir Batman! Sverrir er byrjaður að ausa úr botnlausum viskubrunni sínum. Allir sem hafa áhuga á hagfræðipælingum á mannamáli ættu að setja síðuna hans í uppáhaldsið.

Pólitískt þras

Stjórnmál geta verið afskaplega hreint leiðinleg. Sérstaklega er leiðinlegt að þrasa um flokka og fólk. Hvort þessi flokkur er svona eða hinseginn eða þessi stjórnmálamaður er svona eða þannig. Ég ætla þess vegna að hlífa ykkur við mínum skoðunum á því. Þið getið gert ykkur hugarlund hvort eð er.
En köfum undir flokka og jafnvel heilsteyptar [...]