Kostir og gallar ESB eftir Hallgrím Óskarsson

Eyjubloggarinn Hallgrímur Óskarsson hefur gert tilraunir til að setja niður á einfaldan hátt punkta sem fjalla um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið. Hvað finnst ykkur?

Viðskiptalegar forsendur

Hérna talar bleikur og safaríkur orkuspeni um að engar viðskiptalegar forsendur séu til lækkunar raforkuverðs til garðyrkjubænda. Fyrir þá sem misstu af 1991-2009 þá eru viðskiptalegar forsendur og arður sá mælikvarði sem allt í heiminum skal dæmt eftir.
Nú hef ég aldrei verið sérlegur talsmaður bænda. Eiginlega þvert á móti hef ég aldrei botnað í því [...]

Bubbi Fischer

Bubbi ætlar að kjósa Sjálfstæðiflokkinn. Hann á ýmislegt sameiginlegt með Bobby Fischer. Hvor um sig snillingur á sínu sviði, Bobby kannski á meiri heimsmælikvarða.
Lögin sem Bobby Fischer braut voru öllu vafasamari en þau sem Bubbi braut. Bubbi hefur marga fjöruna sopið í fíkniefnaheiminum, en Bobby var meira í því að brjóta alþjóðasamninga.
Báðir hafa náð ágætis [...]

Helvítið klofnar

Nú klofnar Sjálfstæðisflokkurinn eftir sér endilöngum. Það eru gleðifréttir því klofningar úr Sjálfstæðisflokknum hafa iðulega verið skárri en frummyndin. Hinsvegar háir það þessum aumingjans greyjum hvað þau eru heimakær. Oftar en ekki afklofnar þetta svo aftur. Því auðvitað vilja menn fyrst og fremst völd.
Áhugavert verður að sjá á hvaða hugmyndafræði þessir nýju hægriflokkar koma til [...]

Gleðilega páska

Ég hef aldrei almennilega botnað í kristinni trú en mamma reyndi að kenna mér hana. Kannski vantaði kennslukonuna sjálfa meiri sannfæringu, en ég þykist vera jafn vel að mér í þessum trúarbrögðum og hvert annað fyrrverandi fermingarbarn. Ingimar prestur var líka talsmaður utanbókarlærdóms, enda varla annað hægt í trúarbragðakennslu.
Píslarganga Jesú Krists er eins og hvers [...]

Baugsmiðlar og flokkar

Hvað næst? “Sjálfstæðismenn hittast á leynilegum fundum og borða börn!” Það kæmi mér smá á óvart, en ekkert hrikalega samt.

Hin langa hengingaról

Ég er ósammála viðskiptaráðherra okkar og sammála hinum gölnu samsæriskenningaprófessorum. Við getum ekki borgað og ættum ekki að gera það.
Hinsvegar er ýmislegt að gerast bak við tjöldin. Eins gott að Össur fór því annars hefði maður ekkert frétt. Össur nefnilega hefur einkennilega leið til að þegja yfir leyndarmálum. Hann segir bara smá einhverstaðar þar sem [...]

Sko strákinn!

Í dag var síðasta skiptið sem ég þurfti að mæta í skólann í námi mínu. Ef ég verð ekki algjör haugur þá útskrifast ég með BA í lögfræði í Júní. Jei!

Besta gabbið

Mörg voru þau góð en þetta var það eina sem fékk mig til að hlæja upphátt.