Þegar allt annað bregst…

…prófið húmor!

Tónlistarhúsið

Ég kveikti ekki á perunni í gær þegar atvinnulaus maður hringdi í mig (framkvæmdastjóra Portus ehf.) og spurði mig hvort hann gæti ekki byrjað að vinna. Greinilegt að þetta hefur verið besti staðurinn til að vinna svart:
http://visir.is/article/20090526/FRETTIR01/627264642/-1

Vogin

Vog: Nú er komið að því að þú verður að taka afstöðu til þeirra mála sem skipta sköpum fyrir framtíðina. Ef þú heldur áfram á sömu braut færðu orð á þig fyrir geggjaða snilligáfu.

Staðartunguháls

Ég og skipperinn fórum í morgun á eina fjallið (hvenær verður háls fjall?) á svæðinu sem var snjólaust: Staðartunguháls. Hann skiptir Öxnadal og Hörgárdal. Ég er ekki viss hversu hár hann er en ég myndi giska á að hann sé yfir 600 metrar.
Fyrsta ganga sumarsins náði að sannfæra pabba um að hann væri ungur og [...]

Árið 2009 og femínismi

Manni er eðlislægt að hefja svona pistil á fyrirvara. Ég nenni því ekki.
Nema hvað að kynjahlutföll nýrrar ríkisstjórnar eru víst hræðilega vitlaus. Heili minn bara hreinlega nær ekki utan um þær siðferðispælingar sem eru á bak við þann þankagang að slíkt megi ekki gerast. Ef hinsvegar ég sannfærist um að slíkt eigi ekki að gerast [...]

Hvað kostar Eurovision?

Í gegnum tíðina hefur fólk alltaf getað huggað sig við það að þó við hefðum ekki unnið Eurovision þá væri það bara gott vegna þess að við hefðum ekki efni á að reka þessa keppni. Rússar eru að gera einhverja ægilega flotta keppni skilst mér, enda þurfa umbúðirnar að vera glæsilegar ef gjöfin er léleg.
Þeir [...]

Fimm þúsund milljónir!

Maður veltir því fyrir sér hvernig í andskotanum er hægt að reka eitt bæjarfélag svona djöfulli illa!