Árið 2009 og femínismi

Manni er eðlislægt að hefja svona pistil á fyrirvara. Ég nenni því ekki.

Nema hvað að kynjahlutföll nýrrar ríkisstjórnar eru víst hræðilega vitlaus. Heili minn bara hreinlega nær ekki utan um þær siðferðispælingar sem eru á bak við þann þankagang að slíkt megi ekki gerast. Ef hinsvegar ég sannfærist um að slíkt eigi ekki að gerast þá nær heili minn ekki utan um lausn á slíku. Gefum okkur dæmi.

Ónæmiskerfi karla er hugsanlega veikara en kvenna. Eigum við þá að… veikja ónæmiskerfi kvenna? Jákvæð mismunun? Ef fleiri karlar eru kosnir í tilteknum kosningum, eigum við þá að veikja stöðu karla?

Sjálfur frábið ég mér að vera talinn til einhvers hóps nema að verða spurður um það fyrst. Mitt kyn er mitt einkamál héðan í frá.

Ein ummæli

  1. Mér finnst þetta alvarlegt mál að 3 af 5 ráðherrum séu karlar og ennþá alvarlegra finnst mér að UVG sé að einblína á svona andskotans rugl í stað þess að reyna koma með vitrænar hugmyndir um að bjarga landinu frá glötun.
    Ég er hlynntur flestu í V.G nema þessu kvennfrelsiskjaftæði. Þetta er einfaldlega tímaskekkja dauðans og háir flokknum.
    Ég persónulega þekki ekki einn ófrjálsan kvennmann . Ég þekki fullt af ófrjálsum körlum .
    Mér er persónulega alveg sama þótt allir ráðherrarnir eða ráðherfurnar væru konur bara ef hæfustu einstaklingarnir væru valdir.
    UVG virðast bara fara eftir því hvort einstaklingurinn er með typpi eða ekki . Ef það er typpi sem fær stöðuna þá er það kynjamismunun . Ef vanhæf hola eins og kolbrún heitin fær stöðuna er það jafnrétti . Bráðum getur enginn með typpi fengið stjórnunarstöðu nema typpið sé samkynhneigt og þar af leiðandi í minnihlutahóp.
    Andskotans halfvítar.

Skildu eftir svar