Ég kveikti ekki á perunni í gær þegar atvinnulaus maður hringdi í mig (framkvæmdastjóra Portus ehf.) og spurði mig hvort hann gæti ekki byrjað að vinna. Greinilegt að þetta hefur verið besti staðurinn til að vinna svart:
http://visir.is/article/20090526/FRETTIR01/627264642/-1
Flokkað undir: Uncategorized
Talið er að sjóðir atvinnuleysistryggingasjóðs verði uppurnir í október næstkomandi. Þá þarf ríkið að taka við.
Þetta er allt að fara fjandans til. Hefðir þú tekið þessar hækkanir á benzíni og áfengi (og lánunum í leiðinni) til mála ef þú hefðir verið á þingi, Drengur?
Sæl Steinunn.
Að sjálfsögðu. Hinsvegar hefði mitt fyrsta verk verið að afnema verðtrygginguna, þar af leiðandi hefðu fyrrtaldar hækkanir aðeins tilætluð áhrif en ekki ófyrirséðar afleiðingar sem auka vandan en minnka hann ekki. (ófyrirséðar hvað?)
Það hefur verið ljóst lengi að Ísland er í fokki og hélt fólk að það þyrfti ekki að takast á við þetta? Þegar ég var að mótmæla vitleysingunum með skilti og hvaðeina þá var ég að mótmæla þessari framtíð minni hérna á Íslandi. Þetta er staðreynd.
En heilög Jóhanna aftur á móti er, rétt eins og ASÍ, boðberi verðtryggingar og það er stórt vandamál.
Mæl þú manna heilastur Drengsi minn …