Ég er umkringdur sumu því svartsýnasta fólki sem á jörðinni hefur gengið. Er nema von að maður sé sjálfur svona fjandi neikvæður og leiðinlegur alltaf? Ég hef þó verið hótinu bjartsýnni með framtíð góðra siða í stjórnmálum og viðskiptum. Eins og við sjáum t.d. í Bretlandi þessa dagana, og náttúrulega á Íslandi líka, þá er sjálftaka ekki lengur sérlega vinsæl hjá öðrum en þeim sem hana stunda. Þó að Árni Johnsen hangi inni á Þingi þá er það bara ágætis áminning þess að allt er í heiminum hverfult.
Allt í einu er sjálf uppspretta græðginar og illskunar sem einkennt hefur heiminn síðustu árin, Svartiskóli hinn síðari; Viðskiptaskóli Harvard, búinn að slaka á barnafrekjufræðslunni og nemendurnir, þó bara hluti þeirri, leyfa sér að lýsa því yfir að þeirra hlutverk eftir útskrift úr MBA námi sé að þjóna almannahag.
Spurningin er bara hvort afturhvarf til fortíðar, hvort að 100-250 ára gömul siðfræði, hvort Mill og Marx frekar en Posner, Friedman, Hayek og Satan, sé komið til að vera í lengri tíma? Hvert er næsta skref? Siðferðisleg afstæðishyggja og sjálfsréttlæting gerir kannski comeback? Sést stíga út úr limmósínu á píkunni eins og Britney?
Flokkað undir: Uncategorized
Óþarfa komment þarna um neikvæða fólkið þó það hafi kannski verið örlítið neikvæður blær yfir einni lítilli símhringingu sem þú fékkst í gær
Útskriftarveisla????
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Í DAG, 13 JÚNÍ. VIÐ ÞIG BIND ÉG MIKLAR VONIR GAGNVART FRAMTÍÐNNI.
Til hamingju með áfangann í gær! Það er alltaf svo gott þegar markinu er náð. Svo er bara að stefna að næsta marki ekki satt
Takk kærlega fyrir.