Höfundaréttarbrot verra en morð

Nú hefur komið í ljós að íranska leynilöggan heldur uppi vefsíðu hjá netfyrirtæki í Houston í Bandaríkjunum sem birtir myndir af mótmælendum þar sem stuðningsmenn klerkavitleysinganna eru beðnir að aðstoða við að nafngreina og hafa uppi á viðkomandi.

Mikill fjöldi fólks hefur haft samband við netþjónustufyrirtækið í Houston og beðið þá að taka niður þessa síðu þar eð:

1) Það er bannað í Bandaríkjunum að eiga viðskipti við írönsku leynilögguna
2) Fólkið á myndunum er í hættu á að verða myrt
3) Þetta er haturssíða í skilningi Bandarískra laga
4) Osfrv

Fyrirtækið segist eingöngu geta tekið síðuna niður ef sannað þykir að á henni sé höfundaréttur brotinn.

Skildu eftir svar